Þriðjungur greindra smita í þriðju bylgju tengist þremur hópsýkingum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. nóvember 2020 07:00 Irishman Pub er einn þeirra staða sem tengist hópsýkingum sem komið hafa upp í þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins. Vísir/Vilhelm Um 2.900 manns hafa greinst smitaðir í þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins. Þriðjung smitanna má rekja til þriggja stórra hópsýkinga á höfuðborgarsvæðinu.
Um 420 smit hafa verið rakin beint eða óbeint til Hnefaleikafélags Kópavogs þar sem upp kom hópsýking í byrjun október. 84 smit hafa verið rakin beint til sýkingarinnar en hin rúmlega 300 smitin óbeint. Inni í heildartölunni eru fleiri smáar hópsýkingar, til dæmis á vinnustöðum, í skólum, leikskólum, líkamsrækt og svo framvegis. Þetta kemur fram í svari Jóhanns K. Jóhannssonar, samskiptastjóra almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, við fyrirspurn Vísis. Í svarinu kemur jafnframt fram að rekja megi um sjötíu smit beint til hópsýkingar sem kom upp í miðbæ Reykjavíkur föstudaginn 11. september og tengd er skemmtistöðunum Irishman Pub og Brewdog. Þá hafa um 350 smit, að þessum sjötíu meðtöldum, verið rakin beint eða óbeint til þeirrar hópsýkingarinnar. Líkt og í tilfelli sýkingarinnar hjá Hnefaleikafélaginu eru inni í þeirri tölu fleiri smáar hópsýkingar, til dæmis í skólum, leikskólum, líkamsrækt og á vinnustöðvum. Langflestir greinst með „bláu veiruna“ Um 770 smit má því rekja til þessara tveggja stóru hópsýkinga í þriðju bylgju faraldursins. Þá er ótalin hópsýkingin á Landakoti en greint hefur verið frá því að rekja megi um 200 smit til þeirrar sýkingar. Alls hafa um 2.900 einstaklingar greinst með Covid-19 í þriðju bylgju faraldursins. Um þriðjung smitanna má því rekja beint eða óbeint til fyrrnefndra hópsýkinga. Greint hefur verið frá því að þriðja bylgjan sé að megninu til borin upp af veirustofni sem fengið hefur bláan lit hjá smitrakningateymi almannavarna. Stofninn hefur því verið kölluð „bláa veiran“ en einnig „franska veiran“ þar sem afbrigðið greindist fyrst hjá tveimur frönskum ferðamönnum sem komu hingað til lands um miðjan ágúst. Vísir beindi þeirri spurningu til almannavarna hvenær ferðamennirnir komu nákvæmlega til landsins og hvenær þeir greindust með veiruna. Reynt var að fá fram með spurningunni hvort þeir hafi greinst við fyrri skimun á landamærum eða þá seinni, það er ef þeir voru að koma frá áhættusvæðum þar sem krafist var tvöfaldrar skimunar með fimm daga sóttkví á milli. Slíkar reglur tóku gildi 31. júlí. Ekki hægt að fullyrða að veiran hafi komið með ferðamönnunum Í svari almannavarna segir að ekki sé hægt að fullyrða að veirustofninn hafi komið til landsins með þessum tilteknu ferðamönnum. Þannig sé ekki hægt að útiloka að hann hafi borist hingað til lands með öðrum. Þá hefur einnig komið fram að ferðamennirnir hafi ekki fylgt sóttvarnaráðstöfunum til hins ítrasta en brotið hafi ekki verið það alvarlegt að ástæða hafi verið til að sekta þá. Vísir spurði út í það í hverju nákvæmlega sóttvarnabrot ferðamannanna fólst. „Eins og greint hefur verið frá áður höfðu ferðamennirnir verið á ferðinni og ekki farið eftir sóttvarnarleiðbeiningum til fulls. Málið var unnið í samvinnu við ferðamennina með leiðbeiningum sem þau skildu ekki,“ segir í svari almannavarna. Af þeim 2.900 einstaklingum sem greinst hafa með Covid-19 í þriðju bylgjunni hafa 2.400 þeirra greinst með „bláu veiruna“.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Fleiri fréttir Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Sjá meira