Skólasund verður valfag Snorri Másson skrifar 23. janúar 2022 14:00 Árbæjarskóli býr svo vel að hafa eigin laug, þar sem nemendur allt upp í 10. bekk synda fram og til baka eins og námskrá býður. En um árabil hefur áttundu og níundu bekkingum boðist að taka hæfnisprófið fyrir 10. bekk, og klára þannig fyrr. Þá er farið í aðrar íþróttavalgreinar í staðinn, og þetta vill borgin nú bjóða öllum grunnskólanemum á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Sigurjón Skólasund verður frá og með næsta skólaári að valfagi á unglingastigi grunnskóla í Reykjavík, gegn því að nemendur standist hæfnispróf fyrir tíunda bekk. Þá geta þeir valið að fara í aðrar greinar í stað sunds.
Fyrst er gert ráð fyrir að börnum verði gert viðvart um þennan möguleika strax í áttunda bekk og geti þá klárað sundið í 9. bekk. Fréttastofa leit við í Árbæjarskóla, þar sem drengir í sjöunda bekk eru meðvitaðir um að ef þeir vanda sundtökin í vor og næsta vetur, gætu þeir klárað skólasund alveg strax í áttunda bekk. Þannig hefur þetta verið undanfarin ár í Árbænum en með breytingum sem borgarstjórn hefur samþykkt á þetta nú að verða svona í öllum skólum. Taka þetta og klára þetta Eitt breytist ekki: Þú þarft að uppfylla hæfnisviðmiðin. Maður þarf til dæmis að geta synt viðstöðulaust þolsund í 20 mínútur, 25 metra flugsund, þú þarft að kunna björgunarsund með jafningja og þú þarft að geta troðið marvaða í heila mínútu. Þá þarftu að vera með góða grunntækni í helstu sundtökum. Alda Hanna Hauksdóttir sundkennari segir að eftir að nemendum fór að bjóðast að útskrifast snemma úr sundi gegn því að ná góðum árangri, hafi öll frammistaða batnað til muna. Flestir klára í níunda bekk. „Eftir að við tókum þetta upp finnst mér ég sjá betri mætingu, þau spyrja meira hvað þau þurfa að laga. Og þau leggja sig bara miklu meira fram. Þau fá svona smá hvatningu, og hugsa bara veistu ég ætla að taka þetta og bara klára þetta,“ segir Alda. Styrmir Tryggvason, nemi sem fréttastofa ræddi við, segir: „Ég er alveg að stefna að því að hætta og ná áttunda bekknum en annars geri ég það bara í níunda. Þá bara er ég hættur að hugsa um það og get farið að sinna hinu náminu betur,“ segir Styrmir. Kvíðin í klefanum Tillagan á að sögn meirihlutans í borginni að vinna gegn kvíða ungmenna og vanlíðan sem getur fylgt skólasundi með tilheyrandi sundklæðnaði og sturtuferðum. Þessi breyting er þó að mati Öldu ekki endilega til þess fallin, enda aðeins um 40% sem klára strax í áttunda bekk, og það er ekki endilega sá hópur sem kvíðir skólasundi sérstaklega. Alda Hanna segir fjölmargt gert til þess að koma til móts við nemendur sem kunna skólasundi og umgjörðinni utan um það illa.Vísir/Sigurjón „Þetta er bara hlutur sem við þurfum að vinna með, sem ég tel að flestallir geri. Við erum með tvo klefa. Stundum get ég leyft nemandanum að vera bara í öðrum klefanum og restinni í hinum. Ég hef meira að segja leyst þetta þannig að nemandi er bara í minni aðstöðu þar sem hann er ekki í neinum stórum klefa. Þeim finnst oft bara óþægilegt tilfinning að berskjalda sig þegar þau eru að ganga á milli, svo þegar þau eru komin ofan í þá er þetta allt í lagi,“ segir Alda í samtali við fréttastofu.
Sund Sundlaugar Grunnskólar Skóla - og menntamál Reykjavík Tengdar fréttir Vill endurskoða fyrirkomulag skólasunds vegna vanlíðanar barna Salvör Nordal, umboðsmaður barna hefur sent mennta- og menningarmálaráðuneyti bréf þar sem hún hvetur til þess að fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum verði endurskoðað. Hún telur ákveðinn hóp upplifa óöryggi og vanlíðan í sundtímum. 23. júní 2021 12:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Fleiri fréttir Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Sjá meira
Vill endurskoða fyrirkomulag skólasunds vegna vanlíðanar barna Salvör Nordal, umboðsmaður barna hefur sent mennta- og menningarmálaráðuneyti bréf þar sem hún hvetur til þess að fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum verði endurskoðað. Hún telur ákveðinn hóp upplifa óöryggi og vanlíðan í sundtímum. 23. júní 2021 12:09