Stuðningsfólk Viðreisnar líklegast til að fara í frí til útlanda á þessu ári Eiður Þór Árnason skrifar 4. mars 2021 13:01 Ferðaskrifstofur og flugfélög gera sér vonir um að uppsöfnuð þörf muni leiða til sprengingar í utanlandsferðum þegar fólk telur öruggt að fara út fyrir landsteinanna. Vísir/getty 58,7 prósent Íslendinga segja ólíklegt eða útilokað að þeir fari í frí til útlanda á þessu ári samkvæmt könnun Maskínu sem unnin var fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. 16,1 prósent svarenda telja mjög líklegt eða alveg öruggt að utanlandsferð sé í kortunum.
13,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðu það í meðallagi líklegt að farið verði í frí til útlanda fyrir lok ársins og 28 prósent sögðu það ýmist líklegt, mjög líklegt eða öruggt. Óhætt er að segja að ferðaþjónustugeirinn hafi víða verið í lamasessi undanfarið ár vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru og meðfylgjandi ferðatakmarkanna. Óvenjulítið hefur verið um utanlandsferðir landsmanna á þeim tíma en greinilegt að farið er að bera á ferðaþorsta hjá einhverjum hluta landsmanna þó ekki sjái alveg fyrir endann á faraldrinum eða hvenær bólusetningu lýkur. Tæp 13 prósent svarenda töldu útilokað að þeir væru á leið í frí erlendis á þessu ári. Maskína Langflestir ætla til Evrópulanda Af svarendum Maskínu sem sögðu öruggt eða líklegt að þeir fari í frí til útlanda á árinu sögðu langflestir, eða 91 prósent, að líklegast yrði ferðinni heitið til landa innan Evrópu en 10,4 prósent horfðu til Norður-Ameríku. Þá nefndu mun færri aðrar heimsálfur en þátttakendur gátu merkt við fleira en eitt svar í þessari spurningu. Flestir sem töldu líklegt eða öruggt að ferð yrði bókuð á árinu sögðu að farið yrði út í september til desember, eða 66,4 prósent, en 21,3 prósent horfðu helst til júlí eða ágúst. 10,2 prósent töldu líklegast að farið yrði í maí eða júní og einungis 2,1 prósent vildu fara fyrir maímánuð. Svör við spurningunni „Hversu líklegt eða ólíklegt er að þú farir í frí til útlanda á þessu ári?“ greind eftir bakgrunnsbreytum.Maskína Karlar og langskólagengið fólk líklegra til að bóka ferð Séu niðurstöður greindar eftir bakgrunnsbreytum kemur í ljós að karlar eru líklegri til að hyggja á utanlandsferð á þessu ári en 32,4 prósent þeirra svöruðu því að það væri líklegt eða öruggt að þeir myndu fara í frí erlendis á árinu samanborið við 23,3 prósent kvenna. Þá benda niðurstöður Maskínu til þess að jákvæð fylgni sé á milli lengri skólagöngu og aukins ferðaáhuga. Til að mynda sögðu 32,8 prósent svarenda sem höfðu lokið framhaldsnámi í háskóla að það væri líklegt eða öruggt að utanlandsferð væri í kortunum samanborið við 24,9 prósent þeirra sem höfðu einungis lokið grunnskólaprófi. Ferðaáhugi var misjafn eftir því hvar fólk er staðsett í stjórnmálum.Maskína Stuðningsfólk Viðreisnar spenntast fyrir utanlandsferð Þeir sem eru með hærri tekjur eru líklegri til að fara til útlanda en 40,8 prósent svarenda sem sögðust vera með 1,2 milljónir króna eða meira í heimilstekjur á mánuði sögðu slíkt líklegt eða öruggt. Ef horft er til stuðnings við stjórnmálaflokka þá voru þeir svarendur sem hygðust kjósa Viðreisn líklegastir til að fara í frí erlendis á þessu ári en 40,4 prósent þeirra sögðu það líklegt eða öruggt. Stuðningsfólk Pírata virðist þó ekki vera eins áhugasamt en 69,5% þess sagði ólíklegt eða útilokað að það yfirgefi landið í bráð. Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu á netinu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá. Svarendur voru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar um kyn, aldur og búsetu, svo þau endurspegli þjóðina. Könnunin fór fram dagana 5. til 12. febrúar 2021 og voru svarendur 1.320 talsins.
Ferðalög Skoðanakannanir Viðreisn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Fleiri fréttir Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Sjá meira