Íslensk kona alvarlega særð eftir stunguárás í Lundi Atli Ísleifsson skrifar 22. maí 2023 13:32 Dómkirkjan í Lundi er helsta kennileiti þessa háskólabæjar í suðurhluta Svíþjóðar. Getty Íslensk kona um fimmtugt var flutt alvarlega særð á sjúkrahús eftir að hafa verið stungin með hníf á heimili í Lundi í suðurhluta Svíþjóðar á laugardag. Maður sem tengist konunni var handtekinn á hverfishátíð í grenndinni skömmu eftir árásina en sleppt í gærkvöldi. Hann er ekki lengur grunaður um árásina.
Joakim Nyberg hjá sænsku lögreglunni staðfestir í samtali við fréttastofu að konan sé íslensk og um fimmtug að aldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu er konan á 49. aldursári. Í frétt SVT kemur fram að lögregla hafi fengið tilkynningu um árásina um klukkan 15:20 að staðartíma á laugardag. Lögregla hafi þá komið að konunni sem hafi verið alvarlega særð og mikið hafi blætt úr henni. Haft er eftir sjónarvottum að hávær óp hafi heyrst frá staðnum áður en lögreglu og sjúkralið bar að garði. Fram kemur að 45 ára karlmaður hafi verið handtekinn á hverfishátíð í hverfinu Östra Torn skömmu eftir árásina og að hann hafi þekkt konuna. „Ég get ekki greint nánar um tengslin á milli þeirra,“ segir Rickard Lundqvist, talsmaður lögreglu, í samtali við SVT. Maðurinn neitar sök í málinu en hann er grunaður um tilraun til manndráps. Manninum sleppt síðdegis í gær Haft eftir saksóknaranum Josefin Sävlund að eftir forrannsókn hafi verið ákveðið að fara ekki fram á gæsluvarðhald yfir manninum og var honum sleppt síðdegis í gær. Segir Sävlund að við rannsókn hafi komið fram upplýsingar sem leiddu til að ekki þótti rétt að fara fram á gæsluvarðhald. Maðurinn sé þó enn grunaður um brot sem skilgreint er sem tilraun til manndráps. Enginn annar er sem stendur grunaður um að tengjast málinu, að því er segir í frétt SVT. Uppfært klukkan 15:40 Fram kemur í uppfærðri frétt SVT að karlmaðurinn hafi ekki lengur stöðu grunaðs í málinu.
Svíþjóð Íslendingar erlendis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Þyrla forsetans sögð fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Sjá meira