Stærsti „garðúðari“ sólkerfisins við Satúrnus Kjartan Kjartansson skrifar 1. júní 2023 15:18 Mynd James Webb af vatnsstróknum sem stafar frá Enkeladusi. Tunglið sjálft er innan rauða rammans. Strókurinn er meira en tuttugu sinnum lengri en þvermál tunglsins. NASA, ESA, CSA, STScI, and G. Villanueva (NASA’s Goddard Space F Hátt í tíu þúsund kílómetra langur vatnsstrókur frá Enkeladusi, ístungli Satúrnusar, sést teygja sig um reikistjörnukerfið eins og gusa úr garðúðara á nýlegum myndum James Webb-sjónaukans. Aldrei áður hefur slíkur strókur sést spanna svo miklar vegalengdir.
Enkeladus er eitt áhugaverðasta tungl sólkerfisins. Tunglið er þakið ísskorpu sem hylur víðáttumikið haf fljótandi og salts vatns. Ís, vatnsgufa og lífræn efni spýtast út í geim frá nokkurs konar ísgoshverum á yfirborðinu, Bandaríska geimfarið Cassini kom auga á þessa vatnsstróka og flaug jafnvel í gegnum einn þeirra og efnagreindi hann á meðan á leiðangri þess stóð. Strókarnir hafa sést teygja sig hundruð eða þúsundir kílómetra frá yfirborði Enkeladusar. Næmt auga Webb sýnir hins vegar að strókarnir ná mun lengra en vísindamenn áttuðu sig á. Á nýlegum myndum sjónaukans sést vatnsstrókur teygja sig tæpa 9.700 kílómetra frá yfirborði tunglsins. Það er um tuttugufalt þvermál Enkeladusar sjálfs og um það bil vegalengdin á milli Reykjavíkur og Honolulu á Havaí. „Þegar ég skoðaði þessi gögn hélt ég að þau hlytu að vera röng. Það var bara svo sláandi að greina vatnsstrók meira en tuttugu sinnum stærri en tunglið. Vatnsstrókurinn teygir sig langt frá upptakasvæði sínu við suðurpólinn,“ er haft eftir Geronimo Villanueva frá Goddard-geimmiðstöðvar NASA og aðalhöfundar greinar um rannsóknina, í tilkynningu á vef NASA. Enkeladus spýr strókum vatnsgufu og íss blönduðum lífrænum efnum út í geiminn. Strókarnir eru vísbending um mikið neðanjarðarhaf undir ísilögðu yfirborði tunglsins. Þess mynd tók geimfarið Cassini af Enkeladusi.NASA/JPL-Caltech/Univ. Arizona/Univ. Idaho Gæti fyllt ólympíska sundlaug á um tveimur tímum Gögn Webb hjálpa stjörnufræðingum ennfremur að skilja hvernig strókarnir frá Enkeladusi dreifa vatni um Satúrnusarkerfið og hringi reikistjörnunnar. Villanueva segir að vatnsslóðinn sem tunglið skilur eftir sig myndi nokkurs konar baug í kjölfari sínu við ysta og breiðasta hring Satúrnusar, svonefndan E-hring. Áætlað er að um það bil þrjátíu prósent vatnsins sem gýs upp frá Enkeladusi verði aftur í þessum baugi en hin sjötíu prósentin dreifist um kerfið. Töluverður kraftur er í strókunum frá Enkeladusi, tæplega þrjúhundruð lítrar á sekúndu. Þeir gætu þannig fyllt fimmtíu metra langa sundlaug á tveimur klukkustundum. Til samanburðar tæki það meira en tvær vikur með hefðbundinni garðslöngu á jörðinni.
Geimurinn Vísindi Satúrnus Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Fleiri fréttir Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Sjá meira