Ráðning lögfræðings á fárra færi

Úr leik liðanna á síðustu leiktíð.
Úr leik liðanna á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

„Kvennaráð KA/Þórs á ekki að sitja uppi með óskiptan kostnað við endurtekningu leiks,“ segir í fréttatilkynningu sem stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar sendi frá sér í morgun.

Í síðustu viku úrskurðaði endurnýjaður Áfrýjunardómstóll HSÍ að leikur Stjörnunnar og KA/Þórs, sem fram fór í úrvalsdeild kvenna, Olísdeildinni, 13. febrúar síðastliðinn í TM-höllinni í Garðabæ, skyldi leikinn að nýju.

Mistök urðu á ritaraborðinu í leiknum með þeim afleiðingum að KA/Þór fékk skráð á sig aukamark og lauk leiknum því, sem átti að ljúka með 26:26-jafntefli, með 27:26-sigri KA/Þórs.

Í yfirlýsingunni segjast Garðbæingar tilbúnir að koma til móts við allan ferðakostnað Akureyringa, ef félagið fær ekki styrk frá HSÍ, en þeir ætli sér ekki að greiða bætur vegna lögfræðikostnaðar KA/Þórs vegna málsins.

Yfirlýsing Stjörnunnar:

Í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið í gangi varðandi leik Stjörnunnar og kvennaráðs KA/Þórs þá telur stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar mikilvægt að koma eftirfarandi atriðum á framfæri.

Aðskilnaður dómsmáls og endurtekningar leiks
Í fyrsta lagi er mjög mikilvægt að skilja að í umræðunni annars vegar atvik, í leik Stjörnunnar og kvennaráðs KA/Þórs 13. febrúar sl.  sem deilt var um í málflutningi og hefur verið úrskurðað um af hálfu áfr[ýj]unardómstóls HSÍ og hins vegar hvernig standa skuli að endurtekningu leiksins og kostnaði við hann.

Dómurinn er faglegur og handboltanum til heilla
Stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar telur staðfestan dóm vera faglegan, byggja á sterkum lagalegum rökum og sé handboltanum til heilla. Því má ekki gleyma að Stjarnan sækir málið m.a. út frá þeim forsendum að fá eitt stig úr leiknum enda skoruðu bæði lið 26 mörk og jafntefli því úrslit miðað við það sem raunverulega gerðist á vellinum. En leikurinn skal endurtekinn samkvæmt staðfestum dómi og þar getur brugðið til beggja vona en við eigum von á hörkuleik.

Endurtekning á leiknum – eitt lið á ekki að bera kostnaðinn
Ef endurtaka þarf leik líkt og dæmt hefur verið um í þessu tilfelli og eða öðrum sambærilegum þá teljum við hjá Stjörnunni ekki heppilegt að annað liðið sitji uppi með kostnað við það, líkt og væri raunin fyrir kvennaráð KA/Þórs ef ekki koma til aðgerðir.

Þess má geta að um leið og dómur var staðfestur af áfr[ýj]unarnefnd HSÍ sendi stjórn Stjörnunnar beiðni til HSÍ um að kvennaráð KA/Þór[s] hl[y]ti  sérstakan styrk frá HSÍ sem næmi ferðkostnaði suður og aftur heim. Til vara er Stjarnan tilbúin að greiða helming þess kostnaðar sem sannarlega fellur til og er í samræmi við þann ferðakostnað sem Stjarnan ber við akstur og annað við ferðir norður og heim.

Málflutningskostnaður
Stjórn handknattleiksdeildar hafnar hins vegar öllu tali um bætur vegna málflutningskostnaðar og fordæmir tilburði við að sækja hann til málsaðila eftir að dómur hafi verið staðfestur, enda hafi það verið ákvörðun kvennaráðs KA/Þórs að ráða lögfræðing til að annast málflutning fyrir þeirra hönd. Þess má geta að það var stjórnarfólk handknattleiksdeildar Stjörnunnar [sem] vann að og flutti umrætt mál, af ástríðu og virðingu fyrir staðreyndum máls og þeim lögum og reglum sem í gildi eru hjá HSÍ, enda rekstur íþróttafélaga áskorun þar sem nýta þarf hverja krónu afar vel og ráðning lögfræðinga á fárra færi ef nokkurra. Þess ber að geta að málflutningur í gegnum fjarfundabúnað hefði verið kostur á öllum stigum máls sem Stjarnan hefði ekki sett sig upp á móti enda var slíkur búnaður notaður á ákveðnum stigum málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert