Tímabilið gefur okkur ástæðu til bjartsýni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. maí 2021 20:30 Ole Gunnar Solskjær á hliðarlínunni í kvöld. EPA-EFE/Peter Powell Ole Gunnar Solskjær segir að tímabil Manchester United í heild sinni gefi ástæðu til bjartsýni og að liðið hafi stórbætt sig. Þá sagði hann að fjöldi leikja undanfarið hafi verið ástæðan fyrir öllum breytingunum í kvöld.
Man United tapaði 2-1 fyrir Leicester City í kvöld en um var að ræða þriðja leikinn af fjórum á aðeins sjö dögum. Tapið þýðir að Manchester City er enskur meistari en Solskjær var samt nokkuð brattur í leikslok er hann ræddi við BBC. „Við höfum spilað fjöldann allan af leikjum undanfarið og þurftum að gera mikið af breytingum, það vann aðeins gegn okkur í kvöld. Amad var mjög góður, Anthony Elanga gaf okkur eitthvað öðruvísi og mér fannst Mason Greenwood frábær, ég veit hvað hann getur gert fyrir framan markið,“ sagði sá norski að leik loknum. Amad og Elanga voru að byrja sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni en þeir léku sitthvoru megin við Greenwood í fremstu víglínu Man Utd í kvöld. „Það er allt hitt sem hann er að gera. Hvað hann er þrautseigur og hvernig hann leiddi línuna í kvöld. Honum leið eins og hann þyrfti að axla ábyrgð og hann gerði það frá upphafi til enda en ég ákvað að taka hann af velli þar sem hann hefur spilað þrjá leiki á fimm dögum,“ sagði þjálfarinn um frammistöðu Greenwood en framherjinn ungi skoraði glæsilegt mark í kvöld. „Við náðum aðeins að fara yfir hlutina á æfingu í gær og í morgun en við höfum ekki haft mikinn tíma til að undirbúa okkur, það sást örugglega snemma leiks,“ sagði Ole um tapið. „Tímabilið í heild sinni gefur okkur ástæðu til bjartsýni en við getum einnig bætt okkur. Við höfum elt Manchester City næstum alla leið, þangað til það eru 10-12 dagar eftir af tímabilinu og það er ágætis afrek þar sem þeir eru með mjög gott lið. Þeir eru verðugir meistarar og ég verð að hrósa þeim því þeir hafa spilað frábæran fótbolta á þessu tímabili,“ sagði Solskjær að lokum um Englandsmeistara Manchester City.
Fótbolti Enski boltinn Tengdar fréttir Manchester City enskur meistari í fimmta sinn Manchester City varð í kvöld enskur meistari er Leicester City vann Manchester United 2-1. Þar með getur Man United ekki náð nágrönnum sínum og lærisveinar Pep Guardiola þar með Englandsmeistarar. 11. maí 2021 20:01 Mest lesið Léku með eftirnöfn mæðra sinna á treyjunum Fótbolti Líf Chaz á Íslandi gæti endað á Netflix Körfubolti Fékk flösku í hausinn í gær og mætti með hjálm í dag Sport Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur tveimur mánuðum eftir að hann hætti Fótbolti Dagskráin í dag: Stútfullur sófasunnudagur Sport „Núna skora ég á Njarðvíkinga að jafna baráttuna í stúkunni“ Körfubolti Trúir að Burnley snúi aftur upp: „Er ekki að væla og vorkenna okkur“ Fótbolti „Þetta eru leikirnir sem að maður vill spila“ Körfubolti „Gæti orðið spennandi verkefni að vera í botnbaráttu“ Fótbolti Hólmbert upp í efstu deild en Ísak gæti enn farið beint upp Fótbolti Fleiri fréttir Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla Þriðji sigurinn í röð og daumurinn um Evrópusæti lifir Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll Gvardiol skaut City á toppinn Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Cole Palmer valinn bestur í apríl Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Sjá meira
Manchester City enskur meistari í fimmta sinn Manchester City varð í kvöld enskur meistari er Leicester City vann Manchester United 2-1. Þar með getur Man United ekki náð nágrönnum sínum og lærisveinar Pep Guardiola þar með Englandsmeistarar. 11. maí 2021 20:01