HM hefst á morgun – Hilmar fulltrúi Íslands

Hilmar Snær Örvarsson keppir á HM 2022.
Hilmar Snær Örvarsson keppir á HM 2022. Ljósmynd/ÍF

Heimsmeistaramót fatlaðra í skíðaíþróttum hefst í Noregi á morgun. Alpagreinamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson er eini fulltrúi Íslands á mótinu.

Mótið verður sett í Lillehammer miðvikudaginn 12. janúar. Þetta verður í fyrsta sinn sem allar vetrargreinar fatlaðra verða í boði á einu og sama heimsmeistaramótinu. Tæplega þúsund vertararíþróttamenn frá tæplega 50 löndum verða samankomnir í Noregi næstu daga.

Hilmar Snær keppir á seinni stigum mótsins í svigi og stórsvigi. Keppni í stórsvigi fer fram 19. janúar en svigkeppnin fer fram 21. janúar.

Hægt verður að fylgjast með beinum netútsendingum frá mótinu á Facebook-síðu Íþróttasambands fatlaðra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert