Einum sleppt úr varðhaldi

Níu eru í haldi lögreglu vegna morðsins.
Níu eru í haldi lögreglu vegna morðsins. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Öðrum mannanna, sem handteknir voru í gær í tengslum við morðið í Rauðagerði í síðustu viku, var sleppt nú fyrir stundu. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn, sem fer með rannsókn málsins.

Ekki var óskað eftir því að hann yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald og varð því að sleppa honum, lögum samkæmt enda má lögregla annars aðeins halda mönnum í sólarhring. Hinn maðurinn sem var handtekinn í gær var hins vegar úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær og eru nú níu í varðhaldi í tengslum við málið.

Margeir segir að yfirheyrslur og úrvinnsla gagna standi nú yfir. Hann vill þó ekkert segja til um gang þeirra né hvort játning liggi fyrir frá einhverjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert