Mikil notkun á Fentanýl og aukinn fjöldi ofskammtana Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. febrúar 2021 20:00 Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir hefur áhyggjur af aukinni Fentanýl notkun. Vísir/Einar Árnason Talsvert hefur borið á ofskömmtunum í gistiskýlum borgarinnar, sem rakið er til aukinnar notkunar á Fentanýlplástrum. Kallað er eftir því að neyðarlyfið Naloxon verði aðgengilegt fólki svo hægt sé að koma í veg fyrir dauðsföll.
Forðalyfið Fentanýl er eitt sterkasta verkjalyf á markaðnum og er hundrað sinnum sterkara en morfín. Fentanýl er í plástraformi en þeir sem misnota lyfið leysa plásturinn oftast upp og sprauta efninu í sig. Lyfið getur verið lífshættulegt og til að setja það í samhengi er það talið um fimmtíu sinnum sterkara en heróín. „Við höfum orðið óþægilega vör við það að það hafi verið aukinn fjöldi ofskammtana í neyðarskýlunum og utan neyðarskýlanna líka. Þetta eru allavega fimm tilvik frá áramótunum. Við teljum það frekar alvarlega stöðu,” segir Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri hjá þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða. Hún segir ofskammtanirnar tengjast notkun á notuðum Fentanýlplástrum. Notkunin hafi verið óvenju mikil að undanförnu og útlit fyrir að mikið magn af plástrunum séu í umferð þessi dægrin. „Ég hef ekki séð svona mikla aukningu á svona skömmum tíma en auðvitað hefur þetta gerst í lotum,” segir Hrafnhildur, aðspurð hvort Fentanýl sé í meiri umferð nú en áður. Neyðarlyfið Naloxon getur reynst fólki sem tekur of stóran skammt af ópíóðum á borð við Fentanýl lífsbjörg. Það fæst hins vegar aðeins gegn lyfseðli og því aðeins lítið magn af lyfinu í gistiskýlum, hjá Frú Ragnheiði og lögreglunni, svo dæmi séu tekin. „Við höfum getað reddað okkur í gegnum kennitölur einstaklinga og með aðstoð frá kerfinu, en við hjá Reykjavíkurborg getum ekki fengið uppáskrifaðan lyfseðil því við erum ekki heilbrigðisstofnun,” segir hún. „Þetta er lífsnauðsynlegt,” bætir Hrafnhildur við. Hún kallar eftir því að lyfið verði lausasölulyf líkt og víða um heim, til dæmis í Bandaríkjunum. „Auðvitað ætti þetta að vera lausasölulyf eins og pillan. Foreldrar ættu að geta farið í apótek fyrir bornin sín, þó þau séu orðin fullorðin, og keypt þetta og notendur eiga líka að geta sótt sér þennan búnað.”
Fíkn Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Sjá meira