Segir Japani vilja læra af Íslendingum í jafnréttismálum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 5. desember 2022 15:37 Japönsk yfirvöld eiga mikið verk fyrir höndum en þau vilja jafna stöðu kynjanna og læra af Íslandi í þeirri vegferð að sögn Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, en Japanir sitja í 116. sæti jafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins.
Japanskir ráðamenn fengu Guðna til að flytja opnunarávarp jafnréttisþingsins World Assembly for Women um liðna helgi. Í opnunarávarpi Guðna í Tókýó gerði hann ráðamönnum grein fyrir því að margir samverkandi þættir hefðu stuðlað að þeim árangri sem Ísland hefur náð í jafnréttismálum. „Meðal annars löggjöf um foreldraorlof og löggjöf um sömu laun óháð kyni og jafnlaunavottun og þar fram eftir götunum og þar að auki væri spurning um kynjajafnrétti ekkert mál lengur á vettvangi íslenskra stjórnmála til dæmis. Það þætti bara sjálfsagt að við værum á þeim stað sem við erum og enginn vildi horfa til fortíðar þar,“ segir Guðni. Guðni segist þó hafa haldið því til haga að Ísland sé engin jafnréttisparadís og að enn sé verk að vinna. Ísland hefur þó trónað í efsta sæti jafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins í rúman áratug en Japan er í 116. sæti. Guðni ræddi við helstu ráðamenn í Japan og tók þátt í alls konar málþingum um jafnrétti.Forseti Íslands Hvað er þess valdandi að Japanir eru svona neðarlega á listanum? „Mikil íhaldssemi,“ útskýrir Guðni sem heldur áfram. „Rótgrónar hugmyndir um hlutverk kynjanna í samfélaginu og innan heimilis og japanskir karlmenn vinna langan vinnudag og ætlast svo margir til þess þegar heim er komið þurfi þeir ekki að ómaka sig við heimilisstörf eða uppeldi og þessu þarf að breyta því japanskt samfélag er líka að breytast.“ Hlutfall aldraðra sé orðið ansi hátt og fæðingartíðni lág. „Samkeppnishæfni ríkja er háð því að þátttaka á vinnumarkaði sé mikil og þetta samfélag þarf á því að halda að konur njóti jafnra tækifæra en það er hluti af stefnu stjórnvalda að skipta hér um kúrs og þá gleður það mig, sem fulltrúa okkar Íslendinga, að það er horft til þeirra breytinga sem orðið hafa til batnaðar í íslensku samfélagi í þessum efnum.“ Samfélagið hagnast á auknu jafnrétti Guðni ræddi við forsætisráðherra Japans, jafnréttismálaráðherra og tók auk þess þátt í alls konar viðburðum og málþingum um helgina. Hann segir að erfitt sé að leggja mat á það hvort ráðamönnum í Japan sé alvara með að vilja bæta sig í jafnréttismálum en segist hafa bent á að jafnrétti kynjanna sé ekki aðeins réttlætis og sanngirnismál heldur líka „beinhart hagsmunamál, ef menn vilja hagvöxt, vellíðan og velsæld í samfélaginu.“ „Ef það eru hér einhverjir íhaldssamir menn sem trúa ekki á jafnrétti sem réttlætismál og sanngirnismál þá er nú kannski von til þess að þeir sjái ljósið ef þeim er leitt fyrir sjónir að samfélagið allt muni beinlínis hagnast á auknu jafnrétti.“ Senn líður að lokum Japansferðar forsetans en næst fer hann, ásamt Elizu Reid forsetafrú, til Strassborgar í Frakklandi til að taka þátt í dagskrá og fundum í tengslum við formennsku Íslands Evrópuráðinu.
Forseti Íslands Japan Jafnréttismál Guðni Th. Jóhannesson Tengdar fréttir Forseti Íslands og forsetafrú til Strassborgar Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú munu heimsækja Evrópuráðið í Strassborg í Frakklandi dagana 6.-7. desember. Þar mun forsetinn taka þátt í dagskrá og fundum í tengslum við formennsku Íslands í ráðinu. 5. desember 2022 12:44 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Innlent Fleiri fréttir Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira
Forseti Íslands og forsetafrú til Strassborgar Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú munu heimsækja Evrópuráðið í Strassborg í Frakklandi dagana 6.-7. desember. Þar mun forsetinn taka þátt í dagskrá og fundum í tengslum við formennsku Íslands í ráðinu. 5. desember 2022 12:44