Fjórtán samtök kalla eftir samráði við breytingar á útlendingafrumvarpi Ólafur Björn Sverrisson skrifar 19. maí 2022 17:30 ASÍ er meðal þeirra fjórtán samtaka sem sendu frá sér yfirlýsinguna. Vísir/Baldur Rauði krossinn, ASÍ og Unicef eru meðal þeirra fjórtán samtaka sem gagnrýna stjórnvöld fyrir skort á samráði við meðferð frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga. Yfirlýsinguna sendu félögin frá sér í morgun og lýsa þar yfir áhuga og vilja á því að koma á samráði og samvinnu um mótun laga í málaflokknum.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur nýlega óskað eftir umsögnum um frumvarpið. Núverandi frumvarp er í meginatriðum það sama og áður hefur verið birt til umsagnar í Samráðsgátt. Í umsögnum um fyrri útgáfu frumvarpsins hafa umsagnaraðilar frá stofnunum og samtökum lýst yfir skorti á samráði við gerð frumvarpsins auk verulegra vankanta á efni frumvarpsins. Í yfirlýsingunni er tekið fram að mikilvægt sé að lagabreytingar sem þessar verði unnar í samráði og samtali við aðila sem starfa við málaflokkinn og hafa til þess sérþekkingu og reynslu. Hins vegar hafi við vinnslu núverandi frumvarps lítið verið horft til þess. Fyrra frumvarp heppnaðist vel vegna samráðs Samkvæmt yfirlýsingunni fólu lög um útlendinga, sem tóku gildi í upphafi árs 2017, í sér miklar réttarbætur fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd enda hafi þau verið unnin í þverfaglegu samráði við hin ýmsu hagsmunasamtök og stofnanir. Núverandi frumvarp hefur hins vegar verið gagnrýnt nokkuð vegna skorts á mannúðarsjónarmiðum sem hafi þurft að víkja fyrir skilvirkni. Þessi yfirlýsing félaganna bætist því ofan á urmul gagnrýnisradda sem heyrst hafa síðan málið var sett á dagskrá. Í fyrstu umræðu Alþingis um frumvarpið kom fram að mikil vinna væri fyrir höndum fyrir allsherjar- og menntamálanefnd og að frumvarpið þyrfti að skoða afar vel og jafnvel kalla til sérfræðinga ef þörf er á. „Við viljum því með þessari sameiginlegu yfirlýsingu benda á að áður en lög sem þessi eru mótuð og skrifuð teljum við rétt að samráð verði haft við alla þá hagsmunaaðila sem að málaflokknum koma svo lögin tryggi að réttindi þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd séu vernduð og virt í hvívetna. Þá fyrst verður hægt að ná þeirri þverfaglegu sátt sem tókst við mótun fyrri laga. Við skorum því á ríkisstjórnina að stíga skref til baka, dýpka samtalið og samráðið og þannig ná faglegri sátt líkt og áður hefur tekist“ segir að lokum í yfirlýsingunni frá samtökunum.
Innflytjendamál Alþingi Hælisleitendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn Sjá meira