Lentir í Búdapest

Íslensku landsliðsmennirnir í flugstöðinni í Búdapest í dag.
Íslensku landsliðsmennirnir í flugstöðinni í Búdapest í dag. mbl.is/Kris

Karlalandsliðið í handknattleik var að lenda í Búdapest núna um klukkan tvö að íslenskum tíma og er þessa stundina á leið í skimun áður en það heldur á hótel sitt í ungversku höfuðborginni.

Allir leikmenn og starfslið fengu neikvæða niðurstöðu úr skimun í gær og góðar horfur á að þannig verði það einnig í dag.

Þrír dagar eru í fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu en liðið mætir Portúgal í Búdapest á föstudagskvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert