Stórum hluta Álfhólsskóla lokað vegna myglu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 3. mars 2021 17:21 Myglan fannst í Álmu 5 í Álfhólsskóla, Hjalla í Kópavogi. aðsend mynd Einni álmu í Álfhólsskóla í Kópavogi verður lokað vegna myglu sem fundist hefur í þaki byggingarinnar. Lokunin tekur gildi frá og með morgundeginum og er gerð í varúðarskyni til að vernda nemendur og starfsmenn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.
Myglan kom upp í því sem kallað er Álma 5 í Álfhólsskóla, Hjalla og stendur í norðvesturhorni lóðar skólans næst Álfhólsvegi. Álman nær yfir um fjórðung skólans og er rúmir ellefu hundruð fermetrar. Byggingin hýsir meðal annars stofur undir list- og verkgreinar auk sérkennslustofa. Alls sækja um fjögur hundruð nemendur í fimmta til tíunda bekk Álfhólsskóla, Hjalla. Skólastjórnendur hyggjast hitta alla nemendur á morgun og útskýra stöðu mála. Tilkynninguna í heild sinni má finna hér að neðan: „Einni álmu Álfhólsskóla verður lokað frá og með fimmtudeginum 4.mars vegna myglu sem greinst hefur í þaki byggingarinnar. Lokunin er gerð sem varúðarráðstöfun til að vernda nemendur og starfsmenn. Um er að ræða þann hluta húsnæðis Álfhólsskóla, Hjalla, sem kallast álma 5 og stendur í norðvesturhorni lóðar Álfhólsskóla, Hjalla, alveg við Álfhólsveg. Byggingin hýsir meðal annars stofur fyrir list- og verkgreinar auk sérkennslustofa. Álma 5 nær yfir um fjórðung Álfhólsskóla, Hjalla, að flatarmáli eða 1.130 fermetra. Í Álfhólsskóla, Hjalla, eru 5. til 10. bekkur Álfhólsskóla, alls um 400 nemendur. Stjórnendur Álfhólsskóla vinna nú ásamt kennurum og öðru starfsfólki að endurskipulagningu á kennslu sem raskast óneitanlega þegar loka þarf heilli álmu. Niðurstaða endurskipulagningar mun liggja fyrir á allra næstu dögum en tekið skal fram að nemendum verður tryggð kennsla. Ákvörðunin um lokun er tekin í kjölfar þess að myglusveppur hefur greinst í þaki álmunnar. Einnig mælist hækkaður raki undir botnplötu sem að öllum líkindum rekja má til stíflu sem fannst í drenlögn vestan við húsið. Verið er að greina sýni sem tekin voru úr gólfdúk til að kanna hvort mygla hafi náð fótfestu undir dúknum. Aðdragandi lokunarinnar er sá að starfsmaður fór að finna fyrir einkennum sem fylgja raka- og mygluskemmdum. Eftirgrennslan leiddi í ljós raka undir gólfdúk sem strax var gengið í að laga. Í framhaldinu var ákveðið að fara í ítarlegri skoðun á húsnæðinu og kom þá í ljós að það greindist myglusveppur í þaki álmunnar. Verið er að rannsaka hvort myglan hefur náð að hafa áhrif á loftgæði í kennslustofum, niðurstaða liggur ekki fyrir, en með öryggi nemenda og starfsfólks að leiðarljósi er álmunni lokað frá og með morgundeginum. Ekki er talið að um sambærilegar aðstæður sé að ræða í öðrum álmum byggingarinnar þar sem þakuppbygging er ólík. Þak álmu 5 hefur þá sérstöðu að þar er upphitað rými á 2. hæð og einangrað milli sperra. Í álmu 1.-4. er loftrýmið kalt og einangrað beint ofan á steyptar loftaplötur. Engu að síður verða tekin sýni í öðrum hlutum hússins og send til frekari greininga. Ákvörðun um lokun var tekin af skólastjórnendum í samráði við stjórnendur á mennta- og umhverfissviði Kópavogsbæjar um leið og niðurstöður mælinga lágu fyrir og kynnt starfsfólki, stjórn foreldrafélagsins og skólaráði á fundum miðvikudaginn 3.mars og bréf sent á foreldra. Skólastjórnendur munu hitta alla nemendur á morgun, fimmtudag, og útskýra málið. Þá er unnið að undirbúningi útboðs fyrir endurbætur en stefnt er að því að framkvæmdum verði lokið áður en skólastarf hefst að nýju að loknu sumarleyfi.“
Kópavogur Skóla - og menntamál Heilbrigðismál Grunnskólar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Aukin virkni í gosinu Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Erlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Fleiri fréttir Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Sjá meira