Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Taktikal hefur tryggt sér 260 milljóna króna fjármögnun frá Brunni vaxtarsjóði II sem stýrt er af Brunni Ventures. Fjármagnið verður nýtt til að efla vöruþróun og sækja á erlenda markaði. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Taktikal þróar í dag fjölbreyttar stafrænar lausnir og ferla sem auka traust á netinu og flýta fyrir viðskiptum með því að auka sjálfvirkni í stafrænum lausnum alls staðar þar sem skjöl og undirskriftir koma við sögu.

Taktikal var stofnað snemma árs 2017 af Vali Þór Gunnarssyni, Bjarka Heiðari Ingasyni og Jóni Björgvini Stefánssyni sem höfðu áður starfað sem sérfræðingar í fjármála- og hugbúnaðargeiranum. Starfsmenn Taktikal eru í dag átta talsins og er áætlað að fjöldi starfsfólks félagsins tvöfaldist á næstu mánuðum en framundan er að þróa nýja tegund af skýjalausn er gerir Taktikal fært að bjóða lausnir sínar á alþjóðamarkaði.

Viðskiptavinir Taktikal í dag eru mörg af stærstu fyrirtækjum landsins ásamt ríki og sveitarfélögum er reiða sig á lausnir Taktikal fyrir rafræna upplýsingasöfnun, skjalagerð, innsiglanir og undirskriftir skjala t.d. við móttöku nýrra viðskiptavina (e. onboarding). Í tilkynningu segir að rafræn staðfesting á skjölum með lausnum Taktikal auki þjónustustig fyrirtækja og sparar þeim dýrmætan tíma og vinnu við að safna undirskriftum á pappír, en lausn Taktikal er t.d. notuð fyrir ráðningasamninga, fundargerðir hjá stjórnum, trúnaðaryfirlýsingar, eða í viðskiptum með bíla og fasteignir.

Valur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Taktikal:

„Þörfin hefur aldrei verið meiri fyrir að byggja upp traust á netinu. Taktikal leggur áherslu á að aðstoða sína viðskiptavini í stafrænni vegferð þar sem traust og öryggi er í hávegum haft. Þessi fjármögnun gerir okkur kleift að efla vöruþróun og sækja út fyrir landsteinana"

Kjartan Örn Ólafsson, fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures og nýr stjórnarformaður hjá Taktikal:

„Taktikal hefur á að skipa öflugu teymi sem hefur smíðað heimsklassa hugbúnaðarlausn. Okkur hjá Brunni Ventures þykir spennandi að leggja Taktikal lið og fylgja fyrirtækinu í sókn þess á erlenda markaði"