Indverska ríkið gæti hafa staðið að morði í Kanada

Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada.
Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada. AFP

Just­in Trudeau, for­sæt­is­ráðherra Kan­ada, seg­ir að ind­verska rík­is­stjórn­in gæti hafa staðið á bak við morð á kanadísk­um rík­is­borg­ara á kanadískri grund. Hátt sett­um ind­versk­um diplómata hef­ur verið vísað úr landi vegna máls­ins.

Har­deep Singh Nijj­ar, einn leiðtogi sam­fé­lags Síka í Kan­ada, var skot­inn til bana fyr­ir utan sík­amu­steri í fylk­inu Bresku Kól­umb­íu, þann 18. júní.

Trudeau seg­ir nú að kanadíska leyniþjón­ust­an hafi fundið trú­verðugar vís­bend­ing­ar sem tengja dauða Nijjars við ind­verska ríkið. Hann seg­ist hafa borið málið upp við Nar­endra Modi á G20-leiðtoga­fund­in­um sem hald­inn var í síðustu viku.

„Öll aðild er­lendra stjórn­valda að morði kanadísks rík­is­borg­ara á kanadískri grund er óviðun­andi brot gegn okk­ar full­veldi,“ sagði Trudeau á fundi neðri mál­stofu kanadíska þings­ins.

„Það brýt­ur í bága við þær grund­vall­ar regl­ur sem frjáls, opin og lýðræðis­leg sam­fé­lög haga sér eft­ir,“ bætti hann við.

Sakaður um að vera hryðju­verkamaður

Nijj­ar var áber­andi leiðtogi Síka í fylk­inu og sterk­ur talsmaður Khal­ist­an-hreyf­ing­ar­inn­ar. Hreyf­ing­in beit­ir sér fyr­ir því að stofnað verði sjálf­stætt ríki Síka. Slíkt ríki var síðast til á átjándu og nítj­ándu öld og var það staðsett á landsvæði sem nú til­heyr­ir Pak­ist­an ann­ars veg­ar en Punjab-ríki Ind­lands hins veg­ar.

Stuðnings menn Nijjars hafa sagt að hann hafi fengið fjölda hót­ana vegna um­mæla hans. Ind­verska ríkið hef­ur áður kallað hann hryðju­verka­mann og að hann hafi leitt her­flokk aðskilnaðarsinna – ásak­an­ir sem stuðnings­menn hans kalla „til­hæfu­laus­ar“.

Diplómata vísað til dyra

Mel­anie Joly, ut­an­ríki­ráðherra Kan­ada, til­kynnti einnig í dag að ind­versk­um diplómata yrði vísað úr landi.

„Ásak­an­ir um að er­ind­reki er­lendr­ar rík­is­stjórn­ar gæti hafa tengst morði á kanadísk­um rík­is­borg­ara hér í Kan­ada […] eru gjör­sam­lega óá­sætt­an­leg­ar,“ sagði Joly.

„Þess vegna höf­um við í dag vísað hátt sett­um diplómata úr Kan­ada,“ bætti hún við en nafn­greindi þó ekki diplómat­ann.

Melanie Joly, utanríkisráðherra Kanada.
Mel­anie Joly, ut­an­rík­is­ráðherra Kan­ada. AFP/​Kim Min-Hee
mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert