Múslimar víða reiðir Macron Samúel Karl Ólason skrifar 26. október 2020 11:14 Frá mótmælum gegn Macron í Istanbúl í Tyrklandi um helgina. AP/Emrah Gurel
Yfirvöld í Frakklandi hafa kallað sendiherra sinn í Tyrklandi heim vegna ummæla Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, sagði Emmanuel Macron, forseta Frakklands, vera veikan á geði. Erdogan hefur gagnrýnt Macron harðlega á undanförnum dögum og sakað hann um múslimahatur en ríkisstjórn Macron stefnir að því að auka eftirlit með moskum í landinu, auk annarra aðgerða. Franskar vörur eru nú sniðgengnar víða í Arabaríkjum og hafa Frakkar verið gagnrýndir harðlega af múslimum fyrir viðbrögð Macron við hrottalegu morði kennara í úthverfi Parísar. Samuel Paty var myrtur fyrir að hafa sýnt skopmyndir af Múhammeð spámanni í tíma um málfrelsi. Átján ára gamall piltur af téténskum uppruna myrti Paty og afhöfðaði hann. Morðinginn var ekki nemandi við skóla Paty og virðist hafa lagt land undir fót til að fremja morðið. Sjá einnig: Greiddi nemendum til að benda á kennarann Sendiherra Frakklands í Pakistan var kallaður á teppið af Imran Khan, forsætisráðherra landsins, í morgun. Á fundi Khan og sendiherrans sakaði forsætisráðherrann Macron um að „ráðast á íslam“. Franska veraldarhyggjan mikilvæg Aðskilnaður ríkis og kirkju, frönsk veraldarhyggja og hlutleysi trúarbragða er einn af hornsteinum Frakklands og hafa þessi gildi, sem á frönsku gallast „laicité“, lengi verið innrætt í Frakka í gegnum skólastarf. Kennurum hefur þó þótt það mun erfiðara á undanförnum árum. Í byrjun mánaðarins opinberaði Emmanuel Macron, forseti, áætlun ríkisstjórnar hans varðandi íslömsk öfgaöfl í landinu. Hann sagði henni ætlað að berjast gegn „aðskilnaðaröflum“ og verja franska múslima frá utanaðkomandi áhrifum. Áætlunin felur meðal annars í sér aukið eftirlit með skólum og fjárveitingum bænahúsa. Markmiðið er að draga úr áhrifum erlendra aðila, eins og Tyrkja, í moskum í Frakklandi. Þetta hefur verið gagnrýnt og hefur Macron verið sakaður um að vilja bæla niður trú múslima. Áætlunin er sömuleiðis sögð eiga á hættu að réttlæta fordóma gegn múslimum. Sjá einnig: Macron hefur baráttu gegn aðskilnaðaröflum Morð Paty virðist hafa gefið þessari áætlun byr undir báða vængi. í frétt France24 segir að umræðan um franska veraldarhyggju hafi aukist til muna. We will not give in, ever.We respect all differences in a spirit of peace. We do not accept hate speech and defend reasonable debate. We will always be on the side of human dignity and universal values.— Emmanuel Macron (@EmmanuelMacron) October 25, 2020 Í ræðu í Tyrklandi um helgina gaf Erdogan í skyn að Macron væri veikur á geði og sagði franska forsetann vera með sig á heilanum. „Hvað hefur Macron á móti íslam? Hvað hefur hann á móti múslimum?“ sagði Erdogan. „Hann þarf einhvers konar geðheilsumeðferð. Hvað annað er hægt að segja um þjóðarleiðtoga sem trúir ekki á trúfrelsi og hagar sér svona gegn milljónum manna sem eru annarrar trúar og búa í hans eigin landi?“ Forsætisembætti Frakklands hefur gagnrýnt ummælin harðlega og krafist þess að Erdogan dragi úr áróðri sínum. Vert er að taka fram að Frakkar og Tyrkir deila nú um margvís málefni og þar á meðal þegar kemur að átökunum í Líbíu, Sýrlandi og Nagorno-Karabakh auk þess sem Frakkar hafa staðið við bak Grikkja í deilum þeirra við Tyrki. Hér má sjá forsíðu Daily Sabah, sem er tyrkneskt dagblað og þykir ritstjórn þess mjög hliðhollt ríkisstjórn Erdogan. Macron and Wilders, the two faces of hatred, racism in Europe | Today's Front Pagehttps://t.co/q4FsngMGLQ pic.twitter.com/DUeTDH2or7— DAILY SABAH (@DailySabah) October 26, 2020
Frakkland Tyrkland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Sjá meira