Rúnar ósáttur við bannið: Ömurlegt að menn giski á allt hið versta frá mér Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. október 2021 15:06 Rúnar Kárason í leik með íslenska landsliðinu. vísir/getty Rúnar Kárason, leikmaður ÍBV, er afar ósáttur með bannið sem hann var dæmdur í vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leiknum gegn KA á laugardaginn. Rúnar fékk rautt spjald þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum fyrir brot á Patreki Stefánssyni. Rúnar hafði þá skorað sjö mörk. Þrátt fyrir brottrekstur hans vann ÍBV leikinn, 35-31. Á fundi aganefndar HSÍ í fyrradag var Rúnar dæmdur í eins leiks bann. Og hann er langt frá því að vera sáttur við þann úrskurð eins og hann rekur á Facebook-síðu sinni. Hverjum tilheyrði höndin? Þegar Rúnar ræddi við dómarana um brotið eftir leik tjáði annar þeirra honum að hann hafi ekki séð neitt. Hinn sagðist hafa séð útrétta hendi og höfuð kastast til hliðar en var ekki viss hverjum höndin tilheyrði. Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan sem og viðtal við Rúnar þar sem hann segist skilja af hverju dómarar leiksins ráku hann af velli þótt brotið hafi ekki verið gróft. Klippa: Seinni bylgjan - Rúnar um rauða spjaldið Í Facebook-færslunni sagðist Rúnar hafa verið fullvissaður að hann yrði ekki dæmdur í bann vegna rauða spjaldsins þar sem hann hafi ekki áður verið rekinn af velli á tímabilinu. En annað kom á daginn. Þegar Rúnar leitaði nánari skýringa hjá HSÍ var honum tjáð að erfitt væri að sjá á myndbandi hvort hann hafi farið í andlit Patreks eða hvort hnefi eða opinn lófi hafi verið á lofti. En í skýrslu dómara hafi staðið að hann hafi slegið Patrek. Var ekki sárkvalinn Rúnar segir að vegna afleiðinga brotsins hafi menn giskað á það versta og dæmt hann í bann. Hann segir að Patrekur hafi legið eftir sárkvalinn en hafi svo tjáð honum að hann væri það ekki. Rúnar segir að þetta sé aðeins þriðja rauða spjald hans á ferlinum og hann sé þekktur fyrir að vera prúður á velli, og kannski um of. „En að það sé giskað í eyðurnar og gengið út frá því versta, að maður sé bara fauti að reyna meiða menn, óíþróttamannsleg hegðun, það er ég mjög ósáttur við. Því það er ekki það sem ég stend fyrir og mun aldrei gera,“ skrifar Rúnar. Gríðarlega óréttlátt Hann segir að fyrsta rauða spjaldið á ferlinum hafi hann fengið fyrir klaufalegt brot þegar hann var ungur leikmaður Fram og hitt fyrir að skjóta í höfuð markvarðar í vítakasti. Rúnar segir að markvörðurinn hafi hreyft höfuðið og síðan fyrirgefið sér. „En óíþróttamannsleg hegðun og menn giski á að allt hið versta frá mér, það finnst mér ömurlegt, mér líður illa með það og það finnst mér gríðarlega óréttlátt!“ segir Rúnar í lokaorðum sínum í færslunni. Hana má sjá í heild sinni hér fyrir neðan. ÍBV er með fullt hús stiga á toppi Olís-deildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Val á sunnudaginn en þar verður Rúnar fjarri góðu gamni. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Olís-deild karla ÍBV Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Sjá meira
Rúnar fékk rautt spjald þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum fyrir brot á Patreki Stefánssyni. Rúnar hafði þá skorað sjö mörk. Þrátt fyrir brottrekstur hans vann ÍBV leikinn, 35-31. Á fundi aganefndar HSÍ í fyrradag var Rúnar dæmdur í eins leiks bann. Og hann er langt frá því að vera sáttur við þann úrskurð eins og hann rekur á Facebook-síðu sinni. Hverjum tilheyrði höndin? Þegar Rúnar ræddi við dómarana um brotið eftir leik tjáði annar þeirra honum að hann hafi ekki séð neitt. Hinn sagðist hafa séð útrétta hendi og höfuð kastast til hliðar en var ekki viss hverjum höndin tilheyrði. Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan sem og viðtal við Rúnar þar sem hann segist skilja af hverju dómarar leiksins ráku hann af velli þótt brotið hafi ekki verið gróft. Klippa: Seinni bylgjan - Rúnar um rauða spjaldið Í Facebook-færslunni sagðist Rúnar hafa verið fullvissaður að hann yrði ekki dæmdur í bann vegna rauða spjaldsins þar sem hann hafi ekki áður verið rekinn af velli á tímabilinu. En annað kom á daginn. Þegar Rúnar leitaði nánari skýringa hjá HSÍ var honum tjáð að erfitt væri að sjá á myndbandi hvort hann hafi farið í andlit Patreks eða hvort hnefi eða opinn lófi hafi verið á lofti. En í skýrslu dómara hafi staðið að hann hafi slegið Patrek. Var ekki sárkvalinn Rúnar segir að vegna afleiðinga brotsins hafi menn giskað á það versta og dæmt hann í bann. Hann segir að Patrekur hafi legið eftir sárkvalinn en hafi svo tjáð honum að hann væri það ekki. Rúnar segir að þetta sé aðeins þriðja rauða spjald hans á ferlinum og hann sé þekktur fyrir að vera prúður á velli, og kannski um of. „En að það sé giskað í eyðurnar og gengið út frá því versta, að maður sé bara fauti að reyna meiða menn, óíþróttamannsleg hegðun, það er ég mjög ósáttur við. Því það er ekki það sem ég stend fyrir og mun aldrei gera,“ skrifar Rúnar. Gríðarlega óréttlátt Hann segir að fyrsta rauða spjaldið á ferlinum hafi hann fengið fyrir klaufalegt brot þegar hann var ungur leikmaður Fram og hitt fyrir að skjóta í höfuð markvarðar í vítakasti. Rúnar segir að markvörðurinn hafi hreyft höfuðið og síðan fyrirgefið sér. „En óíþróttamannsleg hegðun og menn giski á að allt hið versta frá mér, það finnst mér ömurlegt, mér líður illa með það og það finnst mér gríðarlega óréttlátt!“ segir Rúnar í lokaorðum sínum í færslunni. Hana má sjá í heild sinni hér fyrir neðan. ÍBV er með fullt hús stiga á toppi Olís-deildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Val á sunnudaginn en þar verður Rúnar fjarri góðu gamni. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olís-deild karla ÍBV Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Sjá meira