„Mikil upplifun og heiður“

Mehul Tank, Margrét Þórhildur og Ragnar Hjartarson við hið hátíðlega …
Mehul Tank, Margrét Þórhildur og Ragnar Hjartarson við hið hátíðlega tilefni í Amalienborgarhöll í vikunni. Ljósmynd/Keld Navntoft, Kongernes Samling

Ragnar Hjartarson, listrænn stjórnandi hjá Georg Jensen í Kaupmannahöfn, og Mehul Tank, forstjóri fyrirtækisins, urðu þess heiðurs aðnjótandi í vikunni að ganga á fund Margrétar Þórhildar II. Danadrottningar í Amalienborgarhöll og færa henni forláta nælu að gjöf í tilefni af því að á þessu ári eru liðin fimmtíu ár frá því að hún settist á valdastól.

Nælan góða sem Ragnar Hjartarson afhenti drottningu.
Nælan góða sem Ragnar Hjartarson afhenti drottningu. Ljósmynd/Keld Navntoft, Kongernes Samling

Um er að ræða nælu úr gulli og hvítagulli með 135 listilega útskornum demöntum sem Georg Jensen lét hanna sérstaklega af þessu tilefni. „Það var gert til að fagna einni merkustu vörðunni á vegferð hennar hátignar,“ segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Í samtali við Morgunblaðið segir Ragnar fundinn hafa verið mjög ánægjulegan og að það hafi verið mikil upplifun og heiður að hitta drottninguna. „Það er mikill hátíðarandi hér í Danmörku í kringum afmælið og búast má við mikilli umfjöllun um það á næstunni.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert