Vill að þingið leggi eldsneytisskatt til hliðar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 22. júní 2022 20:47 Joe Biden vill að Bandaríkjaþing leggi eldsneytisskatt tímabundið til hliðar. AP Photo/Evan Vucci Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór fram á það í dag við Bandaríkjaþing, að það myndi samþykkja þriggja mánaða hlé á álagningu eldsneytisskatts.
Eldsneytisverð í Bandaríkjunum er, líkt og víða annars staðar, í hæstu hæðum. Biden sagði fyrr í vikunni að hann væri að íhuga tillögu þess efnis. Tilgangurinn væri að aðstoða bandarísk heimili sem og að berjast gegn verðbólgu. Ekki þykir víst að Bandaríkjaþing muni samþykkja að leggja eldsneytisskattinn tímabundið til hliðar, ekki síst vegna andstöðu ýmissa samflokksmanna Bidens á þingi við tillögunni. Biden getur ekki lagt skattinn tímabundið til hliðar, samþykki bandaríkjaþings þarf til þess. Biden sagði í dag að bandarískir borgarar ættu skilið að fá að fá skjól frá hækkandi eldsneytisverði, sem Biden rakti meðal annars til stríðsins í Úkraínu. Þeir þingmenn beggja flokka sem ekki eru vissir um gagnsemi þess að leggja skattinn til hliðar telja ekki ljóst hvort að ávinningurinn af því muni enda í vasa neytenda eða olíuframleiðenda og olíusala. Bandaríska alríkisstjórnin tekur til sín 18,3 sent á hvert gallon af bensínu og 24,4 sent af hverju galloni af dísel sem Bandaríkjamenn dæla á bíla sína. Á íslenskum mælikvarða eru það um 24 krónur á hvert gallon af bensínu og 29 krónur á hvert gallon af dísel. Eitt gallon er um 3,8 lítrar og því er skatturinn um sex krónur á hvern lítra af bensíni og um átta krónur á hvern lítra af dísel. Eldsneytisverð er í hæstu hæðum í Bandaríkjunum, um fimm dollara á hvert gallon eða um 172 krónur á hvern lítra. Biden hvatti einnig yfirvöld í ríkjum Bandaríkjanna til þess að leggja sértæka eldsneytisskatta sem eru í gildi í einstökum ríkjumm til hliðar tímabundið. Þá segist Biden einnig ætla að hefja viðræður við bandaríska olíuframleiðendur um hvernig megi auka framboð á eldsneyti í Bandaríkjunum, meðal annars með því að athuga hvort sé að nýta á ný aflagðar olíuvinnslur.
Bensín og olía Bandaríkin Joe Biden Tengdar fréttir Skoða að leggja eldsneytisskatt til hliðar Joe Biden, Bandaríkjaforseti, og ráðgjafar hans liggja nú yfir því hvort ráðlegt sé að afnema tímabundið eldsneytisskatt til þess að berjast gegn hækkandi eldsneytisverði og verðbólgu í Bandaríkjunum. 20. júní 2022 23:33 Bensínverð ekki náð methæðum að raunvirði og geti enn hækkað Þrátt fyrir að bensínverð hafi aldrei verið hærra í krónum talið í kjölfar umtalsverðra hækkana er enn nokkuð í að bensínverð nái hæstu hæðum á Íslandi. 16. júní 2022 16:10 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Sjá meira
Skoða að leggja eldsneytisskatt til hliðar Joe Biden, Bandaríkjaforseti, og ráðgjafar hans liggja nú yfir því hvort ráðlegt sé að afnema tímabundið eldsneytisskatt til þess að berjast gegn hækkandi eldsneytisverði og verðbólgu í Bandaríkjunum. 20. júní 2022 23:33
Bensínverð ekki náð methæðum að raunvirði og geti enn hækkað Þrátt fyrir að bensínverð hafi aldrei verið hærra í krónum talið í kjölfar umtalsverðra hækkana er enn nokkuð í að bensínverð nái hæstu hæðum á Íslandi. 16. júní 2022 16:10