Klopp gerði undantekningu og hrósaði leiðtoga andstæðinganna í hástert Sindri Sverrisson skrifar 15. september 2021 13:30 Simon Kjær á leið inn á völlinn á Anfield í gær, í undirbúningi fyrir leikinn í kvöld. Getty/Claudio Villa Liverpool mætir AC Milan á Anfield í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, ákvað að hrósa sérstaklega einum leikmanna Milan fyrir leikinn. Danski landsliðsfyrirliðinn Simon Kjær heillaði greinilega Klopp eins og marga aðra þegar hann átti sinn þátt í að bjarga lífi Christians Eriksen á Evrópumótinu í fótbolta í sumar. Kjær kom hlaupandi fram völlinn þegar Eriksen féll til jarðar og kom honum í læsta hliðarlegu svo að tungan lokaði ekki öndunarveginum. „Vanalega einbeiti ég mér að eigin leikmönnum en ekki andstæðingunum en í kvöld verð ég að gera undantekningu,“ skrifaði Klopp í leikhefti Liverpool vegna leiksins. Jürgen Klopp á blaðamannafundi fyrir leikinn við AC Milan.Getty/Andrew Powell „Í kvöld er mögulegt að Simon Kjær spili á móti okkur og það er manneskja sem að allur fótbolta- og íþróttaheimurinn ber mikla virðingu fyrir,“ skrifaði Klopp. Hann vísaði að sjálfsögðu til þess þegar Kjær kom til aðstoðar eftir að Eriksen fór í hjartastopp á Parken í júní, í leik gegn Finnlandi á EM. „Þegar að menn lenda í hættulegum aðstæðum þá sést sönn leiðtogahæfni. Ég held að heimurinn hafi enn meiri skilning á því nú en áður, eftir allt það sem gengið hefur á,“ sagði Klopp. „Eins og milljónir annarra þá var ég í áfalli eftir það sem á gekk á Evrópumótinu í sumar, þegar Christian Eriksen hneig niður. Það voru margar hetjur á ferð það kvöld, ekki síst allt sjúkrateymi danska landsliðsins, á leikvanginum og á sjúkrahúsinu. En Simon skein á sinn eigin hátt á þessum átakanlega degi,“ skrifaði Klopp. Leikur Liverpool og AC Milan hefst klukkan 19 í kvöld og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Meistaradeild Evrópu Hjartastopp hjá Christian Eriksen Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti Fleiri fréttir Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Sjá meira
Danski landsliðsfyrirliðinn Simon Kjær heillaði greinilega Klopp eins og marga aðra þegar hann átti sinn þátt í að bjarga lífi Christians Eriksen á Evrópumótinu í fótbolta í sumar. Kjær kom hlaupandi fram völlinn þegar Eriksen féll til jarðar og kom honum í læsta hliðarlegu svo að tungan lokaði ekki öndunarveginum. „Vanalega einbeiti ég mér að eigin leikmönnum en ekki andstæðingunum en í kvöld verð ég að gera undantekningu,“ skrifaði Klopp í leikhefti Liverpool vegna leiksins. Jürgen Klopp á blaðamannafundi fyrir leikinn við AC Milan.Getty/Andrew Powell „Í kvöld er mögulegt að Simon Kjær spili á móti okkur og það er manneskja sem að allur fótbolta- og íþróttaheimurinn ber mikla virðingu fyrir,“ skrifaði Klopp. Hann vísaði að sjálfsögðu til þess þegar Kjær kom til aðstoðar eftir að Eriksen fór í hjartastopp á Parken í júní, í leik gegn Finnlandi á EM. „Þegar að menn lenda í hættulegum aðstæðum þá sést sönn leiðtogahæfni. Ég held að heimurinn hafi enn meiri skilning á því nú en áður, eftir allt það sem gengið hefur á,“ sagði Klopp. „Eins og milljónir annarra þá var ég í áfalli eftir það sem á gekk á Evrópumótinu í sumar, þegar Christian Eriksen hneig niður. Það voru margar hetjur á ferð það kvöld, ekki síst allt sjúkrateymi danska landsliðsins, á leikvanginum og á sjúkrahúsinu. En Simon skein á sinn eigin hátt á þessum átakanlega degi,“ skrifaði Klopp. Leikur Liverpool og AC Milan hefst klukkan 19 í kvöld og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Meistaradeild Evrópu Hjartastopp hjá Christian Eriksen Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti Fleiri fréttir Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Sjá meira