Auðunn Gestsson er látinn Jakob Bjarnar skrifar 21. nóvember 2020 19:02 List án landamæra. Auðunn Gestsson les úr þá nýútkominni ljóðabók sinni, árið 2013.
Auðunn Gestsson fyrrverandi blaðasali og ljóðskáld er fallinn frá. Auðunn andaðist á miðvikudag síðastliðinn. Auðunn setti sannarlega svip sinn á bæinn, sér í lagi á þeim tíma sem blöð voru seld í lausasölu. Þeir Óli blaðasali voru kóngarnir. Auðunn var fæddur í Flatey á Breiðafirði 27. febrúar 1937. Talið var, fram að andláti hans að hann væri elsti lifandi einstaklingurinn sem var með Downs-heilkenni. Kolbrún Ragna Ragnarsdóttir, frænka Auðuns, reyndi að fá hann skráðan í heimsmetabók Guinness en það tókst ekki. Óhætt er að segja að Auðunn hafi verið goðsögn þegar kom að blaðasölu. Hér er viðtal við hann í Vísi þann 27. febrúar 1978. Kolbrún sagði í samtali við RÚV fyrir tæpum þremur árum að hjá Guinness sé skráð frú K frá Illinois í Bandaríkjunum elst en hún andaðist 83 ára að aldri. „Ég ætla ekki að hætta að reyna að fá Auðun skráðan hjá Guinness,“ sagði Kolbrún þá og ætlaði að bíða í þrjú ár. Þetta var því tæpt með heimsmetið. Auðunn var alveg einstaklega vel liðinn og setti tíma og rúm ekki fyrir sig, þannig taldi hann Emil í Kattholti sinn besta vin, reyndar tvíburabróður hvorki meira né minna og það stóð jafnvel til að hann myndi giftast Ídu, en ekkert varð af því vegna anna Auðuns. Þetta kemur meðal annars í skemmtilegum aðfararorðum ljóðabókar Auðuns, Ljóðin mín, sem kom út árið 20013, en þau ritar Margrét Gestsdóttir, en Auðunn var ömmubróðir hennar. Þá birtist við hann bráðskemmtilegt viðtal á Vísi þar sem hann ræddi um ljóðabókina sem þá var gefin út í tilefni sjötíu og fimm ára afmælis hans í febrúar og birtir fallega sýn hans á heiminn. Í aðfararorðum Margrétar, æviágripum höfundar, segir að ásamt vinnunni hefur ... „Auðunn einnig haldið áfram að þroska listræna hæfileika sína til munns og handa. Málverk og teikningar hans skipta tugum og skáldfákurinn hefur aldrei verið langt undan. [...] Auðunn hefur jafnan verið í hávegum hafður af stórfjölskyldu sinni sem lofar það hátt og í hljóði að betur fór en á horfðist á þeim tíma þegar Auðunn mátti gráta undan harðýgi Fagins með Óliver Twist og fleiri vinum sínum. Að því tímabili undanskildu hefur hann gengið sólskinsmegin í lífinu. Geðprýði hans er við brugðið en Auðunn er einstaklega jákvæður maður sem margir hafa bundist tryggðarböndum í gegnum tíðina. Auðuni liggur gott orð til þeirra sem á vegi hans verða.“ Auðunn lætur eftir sig fjölda vina, ættingja sem syrgja hann og tvær systur sem lifa lita bróður sinn, 90 og 99 ára gamlar. Í bókinni Ljóðin mín er meðal annars að finna þetta ljóð: Vorvísa Vorið er komið, grundirnar gróa, syngur lóan dirrindí. Litlir vinir sitja úti í grasi með lappirnar upp í loft, kitlar í iljarnar.
Andlát Ljóðlist Reykjavík Fjölmiðlar Downs-heilkenni Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Sjá meira