Grímudólgur réðst á starfsmann verslunar Samúel Karl Ólason skrifar 20. febrúar 2021 07:27 Lögreglan hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir lögregluþjóna hafa haft í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að mikið var um útköll og þar af var ellefu útköllum vegna hávaða frá samkvæmum í heimahúsum sinnt.
Mestur erill var hjá lögregluþjónum í miðbænum. Lögregluþjónar sóttu fimmtán samkomustaði í miðborg Reykjavíkur og könnuðu sóttvarnir, fjölda gesta og opnunartíma. Á einum þeirra staða voru of margir gestir og hólfaskipting ógreinileg. Þá voru starfsmenn ekki með grímur og er málið rannsakað sem brot á reglum um samkomutakmarkanir. Einn var handtekinn fyrir líkamsárás í Laugardalnum en sá var vistaður í fangaklefa vegna ölvunar. Þá óskaði starfsmaður verslunar eftir aðstoðar lögreglu á tólfta tímanum í gærkvöldi eftir að hann varð fyrir líkamsárás frá viðskiptavini sem neitaði að vera með andlitsgrímu. Í annarri verslun í miðbæ Reykjavíkur var tilkynnt um þjófnað og var þjófurinn handtekinn, þar sem hann reyndist eftirlýstur. Tveir voru handteknir eftir að lögreglunni barst í gær tilkynning um grunsamlegar mannaferðir við fjölbýlishús í hverfi Hlíðahverfi. Þegar lögregluþjóna bar að garði kom í ljós að þar var kannabisræktun. Fullur og réttindalaus á stolnum bíl Á ellefta tímanum stöðvuðu lögregluþjónar bíl sem hafði verið tilkynntur stolinn. Ökumaður bílsins reyndist ölvaður og hafði hann áður verið sviptur ökuréttindum. Annar ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur fíkniefna. Sá hafði einnig áður verið sviptur réttindum og auk þess fundust meint fíkniefni á honum og vopn. Enn einn ökumaður var handtekinn vegna ölvunaraksturs. Af lögregluþjónum í Kópavogi og Breiðholti er það að frétta að skömmu eftir klukkan sex í gærkvöldi barst þeim tilkynning um líkamsárás í heimahúsi. Þar kom í ljós að húsráðandi var með minniháttar kannabisræktun á heimili sínu og var sá handtekinn. Annar maður var handtekinn fyrir utan verslun í Kópavogi á ellefta tímanum en sá var einnig grunaður um líkamsárás. Tveir ökumenn voru handteknir vegna ölvunaraksturs og sá þriðji vegna gruns um að sá væri undir áhrifum fíkniefna. Hann reyndist einnig hafa verið sviptur ökuréttindum, fíkniefni fundust á honum og skráningarnúmer bílsins sem hann var á voru röng. Lögregluþjónar í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ handtóku minnst tvo ökumenn í gærkvöldi. Báðir voru ekki með ökuréttindi og er annar þeirra grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Hinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og verður einnig kærður fyrir brot á vopnalögum.
Lögreglumál Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjá meira