Innlent

Brennheitt gjallið kveikir gróðurelda fjarri gígnum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Gígurinn þeytir glóandi gjallinu hátt til himins. Myndin var tekin í gær, 9. maí.
Gígurinn þeytir glóandi gjallinu hátt til himins. Myndin var tekin í gær, 9. maí. KMU

Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag.

Blámóðan í Geldingadölum í gær. Hún stafaði að mestu frá gróðureldum en ekki gosstróknum úr gígnum.KMU

Það fór ekki framhjá ferðamönnum á gosstöðvunum í gær að vesturhlíðar Geldingadala voru allar brennandi. Þar loguðu gróðureldar og lagði í raun meiri blámóðu af þeim heldur en frá gosinu sjálfu, eins og sjá mátti í fréttum Stöðvar 2.

„Jú, það er lokað í dag. Það eru svo miklir gróðureldar núna og þann reyk leggur yfir göngustígana,“ segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum.

Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn.Sigurjón Ólason

Athygli vekur hvað gróðureldarnir kvikna langt frá gígnum en eftir að eldstöðin breytti um ham með hærri gósstrókum tók logandi gjall að berast lengra frá henni og voru ferðamenn að fá yfir sig gjóskuflyksur á gönguleið í yfir kílómetra fjarlægð.

„Þær eru að berast svolítið langt með vindi og töluverður hiti í þeim þegar þær lenda þannig að þær eru að brenna þarna svæði,“ segir Rögnvaldur.

Nýi stígurinn liggur í þægilegum gönguhalla um brekkuna. Áður fengu margir byltu við að klöngrast niður skriðuna vinstra megin.KMU

En það er ekki jarðeldurinn heldur erfiðar göngubrekkur sem hafa verið að valda slysum.

„Tvö og þrjú ökklabrot á dag, - eða mjög slæm slys, þannig séð. Þá er þetta bara slysavarnamál að koma þessu í lag,“ segir Jón Haukur Steingrímsson, jarðverkfræðingur hjá Verkfræðistofunni Eflu, en hann hefur unnið að endurbótum á gossvæðinu.

Jón Haukur Steingrímsson, jarðverkfræðingur hjá Verkfræðistofunni Eflu.Sigurjón Ólason

Fyrir helgi var aðalgönguleiðin bætt með því að skera nýjan stíg í neðstu brekkuna með þægilegum gönguhalla.

„Það var bara mikill munur strax um helgina hvað þetta rúllaði allt miklu léttara þarna.“

Haldið var áfram strax í dag að skera fláa í næstu brekku fyrir ofan sem liggur um gil.

„Og bara um miðja vikuna verður komið álíka spor upp á fjallsbrúnina.“

Gönguleiðir ofar verða grjóthreinsaðar.KMU

Síðan verður haldið áfram að lagfæra gönguleiðina.

„Bara svona grjóthreinsað og unnið með það efni sem er á staðnum þar í svona aðalatriðum.“

Þá er verið að undirbúa ný bílastæði í Nátthagakrika neðan fyrstu brekkunnar.

Nýtt bílastæði verður lagt á sléttlendinu í Nátthagakrika, þar sem gönguleiðir A og B skiljast að. Göngustígnum þangað frá Suðurstrandarvegi verður breytt í bílveg.Egill Aðalsteinsson

„Þar með í raun styttist gangan um svona 1,2 til 1,3 kílómetra hvora leið, miðað við í raun núverandi staðsetningu sunnan við Suðurstrandarveg."

Varúðarskiltum hefur verið komið fyrir á besta útsýnisstaðnum sem varar ferðamenn við að fara út fyrir skilgreint hættusvæði.KMU

„Það er mjög mikið af fólki þarna sem er í raun tiltölulega óvant göngufólk, sem er að koma þarna. Svo þegar líður inn í sumarið og við förum að fá túristana þá eykst það bara ennþá meir,“ segir Jón Haukur Steingrímsson hjá Eflu.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Þrí­brotin en þakk­lát fyrir nafn­lausan hjúkrunar­fræðing

Klaudia Katarzyna varð fyrir því óláni að detta og þrífótbrotna á leið niður frá gosstöðvunum á Reykjanesskaga á laugardag. Hún er þakklát viðbrögðum fólks sem átti leið hjá þar sem hún lá brotin, og er ókunnug ung kona sem aðstoðaði Klaudiu henni ofarlega í huga.

Leggja til bílastæðagjald af þeim sem vilja skoða gosið

Starfshópur stjórnvalda telur að gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli geti orðið fjölfarnasti áfangastaður landsins og leggur til gjaldtöku af bílastæðum. Talsmaður landeigenda segir nauðsynlegt að fara hratt í uppbyggingu.

Skoða þann kost að leggja akveg upp á Fagradalsfjall

Til skoðunar er að leggja akveg upp á Fagradalsfjall til að auðvelda ferðamönnum að sjá eldgosið en jafnframt að bæta núverandi gönguleið svo hún nýtist sem neyðarleið fyrir ökutæki. Bæjarráð Grindavíkur samþykkti nú síðdegis að nýja hraunið fengi nafnið Fagradalshraun.

Eldgosið hagar sér nú eins og goshver

Nýtt hættumat verður gefið út fyrir svæðið í Geldingadal í dag en kvika frá gíg hefur rignt yfir svæði þar sem fólk hefur haldið sig. Eini virki gígurinn í Geldingadölum hagar sér eins og goshver að sögn náttúruvársérfæðings. Tveir gikkskjálftar voru við Kleifarvatn í nótt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×