Seðlabankinn skammar LIVE vegna útboðs Icelandair Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. apríl 2021 10:38 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundi um fjármálastöðugleika í húsakynnum bankans í gær. Vísir/vilhelm Seðlabanki Íslands segir að stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LIVE) hafi ekki gætt að því að meta hæfi einstakra stjórnarmanna við undirbúning og ákvörðun um hvort sjóðurinn tæki þátt í hlutafjárútboði Icelandair. Þetta kemur fram á vef Seðlabankans. Þá skammar Seðlabankinn lífeyrissjóðinn og sagði upplýsingagjöf sjóðsins til bankans hafa verið ábótavant og misvísandi. Það hafi tafið störf bankans. Seðlabankinn hóf í september athugun á stjórnarháttum hjá sjóðnum vegna álitamáls sem komu upp í tengslum við undirbúning ákvörðunar stjórnar sjóðsins um hvort hann tæki þátt í útboðinu. Fyrir útboðið var sjóðurinn stærsti hluthafinn í Icelandair og vakti því athygli að sjóðurinn ákvað að taka ekki þáttt í útboðinu. Það stóð þó tæpt. Fjórir gegn fjórum Ákvörðunin féll á jöfnum akvæðum átta stjórnarmanna. Helmingur stjórnarmanna er fulltrúi launafólks og sagði nei á meðan fulltrúar atvinnurekenda sögðu já. Guðrún Hafsteinsdóttir, varaformaður sjóðsins og forstjóri Kjörís, mælti með kaupum fyrir 2,5 milljarða. „Þarna er um að ræða lífsviðurværi þúsunda starfsmanna og starfsfólk Icelandair er einn stærsti greiðandi félagsgjalda til VR og þar með til lífeyrissjóðsins. Það kom mér því á óvart að það hafi verið fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum sem töluðu fyrir mikilvægi þess að verja störf félagsmanna en ekki fulltrúar launþegahreyfingarinnar,“ sagði Guðrún. Sagði rýningu hafa verið ítarlega Orð hennar féllu í grýttan jarðveg hjá Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR. „Guðrún Hafsteinsdóttir ræðst með ótrúlega svívirðilegum hætti að minni persónu og fulltrúum okkar í stjórn LIVE, starfsheiðri þeirra og trúverðugleika.“ Formaðurinn Stefán Sveinbjörnsson sagði fjárfestingakost sjóðsins sjaldan hafa verið rýndan með jafn ítarlegum hætti og hlutafjárútboð Icelandair. Stjórnin hefði hist á fjórum fundum og rætt ítarlega. „Niðurstaðan var að áhættan í fjárfestingunni væri mikil og vænt ávöxtun vægi ekki upp þá áhættu. Á þeim forsendum var tekin ákvörðun um að taka ekki þátt í útboðinu.“ Seðlabankinn fylgist með Seðlabankinn tók til skoðunar hvort stjórn lífeyrissjóðsins hefði gætt að því með fullnægjandi hætti að meta hæfi einstakra stjórnarmanna við undirbúning og ákvörðun um hvort sjóðurinn tæki þátt í hlutafjárútboðinu í samræmi við kröfur laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og stjórnsýslulaga. Seðlabankinn segist í tilkynningu hafa aflað upplýsinga og gagna um ákvörðunarferli stjórnar sjóðsins vegna útboðsins og átti fundi með stjórnarmönnum sjóðsins þar sem farið var yfir sömu málefni. „Athuguninni er nú lokið og er niðurstaða Seðlabankans sú að stjórn lífeyrissjóðsins hafi ekki gætt að því að meta hæfi einstakra stjórnarmanna við undirbúning og ákvörðun um hvort sjóðurinn tæki þátt í hlutafjárútboði Icelandair Group hf.,“ segir í tilkynningu. Um stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Stjórnin er skipuð átta manns. Bjarni Þór Sigurðsson, Guðrún Johnsen, Helga Ingólfsdóttir og Stefán Sveinbjörnsson eru tilnefnd af VR. Árni Stefánsson, Jón Ólafur Halldórsson og Guðrún Hafsteinsdóttir eru tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins og Guðný Rósa Þorvarðardóttir er tilnefnd af Félagi atvinnurekenda. Stefán er formaður og Guðrún varaformaður. Seðlabankinn hafi farið fram á að stjórn lífeyrissjóðsins myndi framvegis tryggja að fullnægjandi umræða færi fram á stjórnarfundum um hæfi stjórnarmanna þegar tilefni væri til þess, og að stjórnarmönnum sé tryggður kostur á að koma á framfæri upplýsingum sem varða hæfi þeirra í tengslum við þau mál sem eru til umræðu, eftir því sem tilefni er til hverju sinni. Þá taldi Seðlabankinn að upplýsingagjöf sjóðsins til bankans vegna athugunarinnar á stjórnarháttum sjóðsins hafi verið ábótavant og misvísandi sem meðal annars tafði afgreiðslu málsins. „Seðlabankinn mun fylgjast með því að nauðsynlegar úrbætur verði gerðar,“ segir í tilkynningunni. Lífeyrissjóðir Icelandair Seðlabankinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Fleiri fréttir Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Tölum um neytendamál! „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Sjá meira
Þá skammar Seðlabankinn lífeyrissjóðinn og sagði upplýsingagjöf sjóðsins til bankans hafa verið ábótavant og misvísandi. Það hafi tafið störf bankans. Seðlabankinn hóf í september athugun á stjórnarháttum hjá sjóðnum vegna álitamáls sem komu upp í tengslum við undirbúning ákvörðunar stjórnar sjóðsins um hvort hann tæki þátt í útboðinu. Fyrir útboðið var sjóðurinn stærsti hluthafinn í Icelandair og vakti því athygli að sjóðurinn ákvað að taka ekki þáttt í útboðinu. Það stóð þó tæpt. Fjórir gegn fjórum Ákvörðunin féll á jöfnum akvæðum átta stjórnarmanna. Helmingur stjórnarmanna er fulltrúi launafólks og sagði nei á meðan fulltrúar atvinnurekenda sögðu já. Guðrún Hafsteinsdóttir, varaformaður sjóðsins og forstjóri Kjörís, mælti með kaupum fyrir 2,5 milljarða. „Þarna er um að ræða lífsviðurværi þúsunda starfsmanna og starfsfólk Icelandair er einn stærsti greiðandi félagsgjalda til VR og þar með til lífeyrissjóðsins. Það kom mér því á óvart að það hafi verið fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum sem töluðu fyrir mikilvægi þess að verja störf félagsmanna en ekki fulltrúar launþegahreyfingarinnar,“ sagði Guðrún. Sagði rýningu hafa verið ítarlega Orð hennar féllu í grýttan jarðveg hjá Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR. „Guðrún Hafsteinsdóttir ræðst með ótrúlega svívirðilegum hætti að minni persónu og fulltrúum okkar í stjórn LIVE, starfsheiðri þeirra og trúverðugleika.“ Formaðurinn Stefán Sveinbjörnsson sagði fjárfestingakost sjóðsins sjaldan hafa verið rýndan með jafn ítarlegum hætti og hlutafjárútboð Icelandair. Stjórnin hefði hist á fjórum fundum og rætt ítarlega. „Niðurstaðan var að áhættan í fjárfestingunni væri mikil og vænt ávöxtun vægi ekki upp þá áhættu. Á þeim forsendum var tekin ákvörðun um að taka ekki þátt í útboðinu.“ Seðlabankinn fylgist með Seðlabankinn tók til skoðunar hvort stjórn lífeyrissjóðsins hefði gætt að því með fullnægjandi hætti að meta hæfi einstakra stjórnarmanna við undirbúning og ákvörðun um hvort sjóðurinn tæki þátt í hlutafjárútboðinu í samræmi við kröfur laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og stjórnsýslulaga. Seðlabankinn segist í tilkynningu hafa aflað upplýsinga og gagna um ákvörðunarferli stjórnar sjóðsins vegna útboðsins og átti fundi með stjórnarmönnum sjóðsins þar sem farið var yfir sömu málefni. „Athuguninni er nú lokið og er niðurstaða Seðlabankans sú að stjórn lífeyrissjóðsins hafi ekki gætt að því að meta hæfi einstakra stjórnarmanna við undirbúning og ákvörðun um hvort sjóðurinn tæki þátt í hlutafjárútboði Icelandair Group hf.,“ segir í tilkynningu. Um stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Stjórnin er skipuð átta manns. Bjarni Þór Sigurðsson, Guðrún Johnsen, Helga Ingólfsdóttir og Stefán Sveinbjörnsson eru tilnefnd af VR. Árni Stefánsson, Jón Ólafur Halldórsson og Guðrún Hafsteinsdóttir eru tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins og Guðný Rósa Þorvarðardóttir er tilnefnd af Félagi atvinnurekenda. Stefán er formaður og Guðrún varaformaður. Seðlabankinn hafi farið fram á að stjórn lífeyrissjóðsins myndi framvegis tryggja að fullnægjandi umræða færi fram á stjórnarfundum um hæfi stjórnarmanna þegar tilefni væri til þess, og að stjórnarmönnum sé tryggður kostur á að koma á framfæri upplýsingum sem varða hæfi þeirra í tengslum við þau mál sem eru til umræðu, eftir því sem tilefni er til hverju sinni. Þá taldi Seðlabankinn að upplýsingagjöf sjóðsins til bankans vegna athugunarinnar á stjórnarháttum sjóðsins hafi verið ábótavant og misvísandi sem meðal annars tafði afgreiðslu málsins. „Seðlabankinn mun fylgjast með því að nauðsynlegar úrbætur verði gerðar,“ segir í tilkynningunni.
Um stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Stjórnin er skipuð átta manns. Bjarni Þór Sigurðsson, Guðrún Johnsen, Helga Ingólfsdóttir og Stefán Sveinbjörnsson eru tilnefnd af VR. Árni Stefánsson, Jón Ólafur Halldórsson og Guðrún Hafsteinsdóttir eru tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins og Guðný Rósa Þorvarðardóttir er tilnefnd af Félagi atvinnurekenda. Stefán er formaður og Guðrún varaformaður.
Lífeyrissjóðir Icelandair Seðlabankinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Fleiri fréttir Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Tölum um neytendamál! „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Sjá meira