1.135 smit innanlands í gær

Sýnataka við Suðurlandsbraut.
Sýnataka við Suðurlandsbraut. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls greindust 1.135 kórónuveirusmit innanlands gær að því er fram kemur á upplýsingavefnum covid.is og alls 60 smit greindust á landamærum.

Á síðunni segir þó að um bráðabrigðatölur sé að ræða en samkvæmt þeim voru 44% þeirra sem greindust í sóttkví við greiningu.

Alls eru nú 10.033 í einangrun með Covid-19 en 10.063 í sóttkví. 

Nýgengi innanlandssmita er nú 3.974 og nýgengi landamærasmita eru 475.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert