Vonast til að ný ríkisstjórn verði kynnt í næstu viku Vésteinn Örn Pétursson skrifar 23. nóvember 2021 21:02 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra við þingsetningu í dag. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist sjá fyrir sér að hægt verði að kynna nýja ríkisstjórn í næstu viku, að því gefnu að tímaáætlun um afgreiðslu tillagna kjörbréfanefndar, um hvort staðfesta skuli kjörbréf þingmanna gefin út á grundvelli endurtalningar í Norðvesturkjördæmi, standist.
Þetta kom fram í máli Katrínar í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld, þegar hún var innt eftir því hvenær mætti eiga von á fregnum af ráðherraskipan nýrrar stjórnar. „Nú liggur fyrir að það stendur til að greiða atkvæði um tillögur kjörbréfanefndar á fimmtudaginn og ef sú tímaáætlun stenst þá ímynda ég mér að við getum í framhaldinu farið að kynna nýja ríkisstjórn fyrir komandi kjörtímabil og í framhaldinu farið að ræða hér fjárlög og önnur stór mál í næstu viku.“ Þingmenn bundnir af sannfæringu Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra og fulltrúi Vinstri grænna í kjörbréfanefnd, sagði í samtali við fréttastofu að hún teldi að kjósendur ættu að njóta vafans með tilliti til þess hvort ágallar á framkvæmd Alþingiskosninganna í Norðvesturkjördæmi leiddu til ógildingar, og þar með uppkosningar í kjördæminu. Átti hún þar við að hún væri þeirrar skoðunar að heillavænlegast væri að ráðast í uppkosningu í kjördæminu. Aðspurð sagði Katrín, sem er formaður VG, að þingmenn flokksins muni nota morgundaginn til þess að fara yfir greinargerð kjörbréfanefndar, sem hljóði upp á tæpar hundrað blaðsíður. Hún segir þá ljóst að Svandís hafi farið yfir ólíkar hliðar málsins og hvaða niðurstöður megi leiða af atburðarásinni í Norðvesturkjördæmi. Þrátt fyrir það væru þingmenn ekki bundnir af því sem fram kæmi í greinargerðinni, þegar til atkvæðagreiðslu kemur. „Það er enginn þingmaður bundinn af þessu. Það liggur algerlega fyrir og hefur legið frá upphafi að þingmenn verða bundnir af sinni sannfæringu,“ sagði Katrín en bætti við að hún teldi vinnu nefndarinnar vera gott gagn fyrir þingmenn til að byggja mat sitt á.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Alþingi Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Slagsmál enduðu með nefbroti Innlent Fleiri fréttir „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Sjá meira