Innlent

Hræði­legt að þurfa að vera í verk­falli

Bjarki Sigurðsson skrifar
Edda Davíðsdóttir er formaður starfsmannafélags Mosfellsbæjar.
Edda Davíðsdóttir er formaður starfsmannafélags Mosfellsbæjar. Vísir/Arnar

Fjöldi starfsmanna Mosfellsbæjar kom saman á samstöðufundi í dag vegna verkfalls félagsfólks BSRB í sveitarfélaginu. Formaður starfsmannafélags sveitarfélagsins segir stöðuna vera hræðilega. 

Í dag var haldinn samstöðufundur fyrir starfsmenn BSRB í Mosfellsbæ sem eru í verkfalli. Kjaraviðræður bandalagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga hafa lítið komist áfram.

Fundurinn var haldinn í félagsheimilinu Hlégarði og mættu um 150 manns þangað. Að sögn formanns starfsmannafélags Mosfellsbæjar var mikil samstaða meðal gesta fundarins en mikið lófatak mátti heyra í salnum í hvert sinn sem ræðumenn slepptu orðinu.

Frá fundinum í Hlégarði í morgun.BSRB

„Fólk er að sýna samstöðu og samfélagið er að sýna samstöðu. Hvorki við né aðrir skiljum að við séum í þessari stöðu. Þetta er hræðileg staða. Þetta fólk sem er í verkfalli núna er að passa börnin okkar þannig við erum að rugla svolítið í því. En það verður bara að klára þetta. Það verður að klára þetta,“ segir Edda Davíðsdóttir, formaður starfsmannafélags Mosfellsbæjar.

Búið er að boða til verkfalla í 29 sveitarfélögum um land allt og verði ekki samið áður en þau hefjast munu 2.500 manns hafa lagt niður störf, mestmegnis ófaglærðir leikskólastarfsmenn. Formaður BSRB segir mikilvægt að sveitarfélögin fari að meta stöðuna og átta sig á því hver fórnarkostnaðurinn við að hlusta ekki á kröfur starfsfólk sé.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.Vísir/Arnar

„Það er auðvitað markmiðið með verkfalli að knýja fram kröfur okkar við samningaborðið og við finnum að það eru mjög víðtæk áhrifin. Það hefur verið mjög mikill hugur í fólki og gríðarlega góð mæting á alla samstöðufundina. Þau standa keik og sterk saman í baráttunni,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Samningafundur BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga á föstudaginn í síðustu viku endaði á örlítið bjartari nótum en fundirnir á undan en þrátt fyrir það sá sáttasemjari deilunnar ekki tilefni til að boða til nýs fundar milli samningsaðila.


Tengdar fréttir

„Maður verður sár að finna fyrir mis­munun í starfi“

Verkfallsaðgerðir félagsmanna BSRB fara stígandi og óhætt að segja að sveitarfélögin tíu séu farin að finna fyrir áhrifum þeirra. Starfsfólk grunnskóla í Reykjanesbæ skoraði í dag á bæjarstjórann að stíga inn í deiluna. 

Sam­bandið hafi boðið BSRB „mjög góð kjör“

Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir sambandið hafa boðið BSRB „mjög góð kjör“ í tilboði sínu. Fundur sambandsins og BSRB með ríkissáttasemjara í dag bar hins vegar ekki árangur. Þá var ekki boðað til annars fundar sökum þess hve langt er á milli samninganefnda beggja aðila.

„Versta niður­staða sem hægt er að hugsa sér“

Félagsmenn BSRB í Garðabæ bættust í dag í stóran hóp félagsmanna sem fara munu að óbreyttu í víðtæk verkföll eftir um tvær vikur. Aðgerðirnar ná til tuttugu og níu sveitarfélaga og munu meðal annars bitna á sundlaugum, sem víða gætu staðið lokaðar fram eftir sumri. Varaformaður BSRB segir verkföll verstu niðurstöðu sem hann geti hugsað sér.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×