Annie mögnuð í sjöttu grein: Sara upplifði afar erfiða stund Aron Guðmundsson skrifar 4. júní 2023 09:23 Upplifun Ragnheiðar Söru og Anniear af sjöttu grein undanúrslitamótsins var gjörólík Vísir/Samsett mynd Annie Mist Þórisdóttir byrjaði daginn af krafti á undanúrslitamóti CrossFit í Berlín fyrir heimsleikana sem fara fram í ágúst. Annie endaði í 2. sæti í sjöttu grein mótsins og stendur afar vel að vígi fyrir lokagrein dagsins
Annie hóf daginn í 2. sæti í heildarstigakeppni mótsins og í grein dagsins kom hún aðeins á eftir efstu konu á styrkleikalista CrossFit, hinni ungversku Laura Horvath. Árangur Anniear í sjöttu greininni færði henni alls 97 stig í heildarstigakeppninni og er hún áfram í 2. sæti mótsins, sextán stigum á eftir Gabriela Migala sem leiðir mótið fyrir lokagrein þess síðar í dag. Þuríður Erla Helgadóttir stóð sig frábærlega í sjöttu greininni og endaði í sjötta sæti. Hún vinnur sig upp um þrjú sæti milli greina. Þá gerði Sólveig Sigurðardóttir einnig vel í sjöttu greininni og endaði í 17. Sæti. Hún er sem stendur í 21. sæti mótsins. Sárt að horfa á Söru Á meðan að Annie og Þuríður áttu afar góðu gengi að fagna í sjöttu grein undanúrslitamótsins átti Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir erfitt uppdráttar. Hún féll á tíma í sjöttu greininni eftir að hafa átt í erfiðleikum með einn hluta hennar, klifur upp og niður kaðal þar sem ekki mátti nota fæturna sér til stuðnings. Heyra mátti á lýsendum í beinni útsendingu á mótinu hversu mikið þeir fundu til með Söru á þessum tímapunkti. Íslenska valkyrjan sýndi þó styrk og þrautseigju með því að gefast ekki upp og halda áfram, aftur og aftur, að reyna klára greinina. Sara er sem stendur í 18. sæti undanúrslitamótsins en ellefu efstu keppendurnir í kvennaflokki tryggja sér sæti á heimsleikunum í ágúst.
CrossFit Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Fleiri fréttir Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Elvar stigahæstur í grátlegu tapi „Ég á von á því að það verði allt önnur tónlist hjá þeim í Grikklandi“ „Ef við þolum þann þrýsting sem verður í Grikklandi eigum við skilið að verða Evrópumeistarar“ Aníta tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Fury í ham og ýtti Usyk í vigtuninni Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Sjá meira