Engar breytingar á einangrun þrátt fyrir nýjar reglur um sóttkví Fanndís Birna Logadóttir skrifar 25. janúar 2022 17:44 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur ekki verið hrifinn af tillögum þess efnis að stytta einangrun. Vísir/Vilhelm Breyttar reglur um sóttkví voru tilkynntar í dag en engu að síður er sóttvarnalæknir harður á því að breytingar verði ekki gerðar á lengd og framkvæmd einangrunar. Hann segir mikilvægt að aflétta í varfærnum skrefum en viðbúið er að fleiri muni greinast í skólum vegna þeirra breytinga sem kyntnar voru í dag.
Frá og með miðnætti í kvöld taka gildi breyttar reglur um sóttkví hér á landi en heilbrigðisráðherra tilkynnti í morgun að fólk sem verður útsett fyrir smitum utan heimilis þurfi ekki að sæta sóttkví heldur fara í smitgát. Börn og unglingar verða algjörlega undanþegin reglum um smitgát. Í minnisblaði sem Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sendi á Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra í gær má finna ýmsar tillögur í ljósi stöðu faraldursins, sem virðist hafa verið stöðugur undanfarnar þrjár vikur. „Á þessari stundu tel ég að afléttingar þurfi að hefja með því að einfalda enn frekar ýmsar leiðbeiningar um sóttkví og sýnatökur og í framhaldi af því létta á ýmsum takmarkandi samfélagslegum aðgerðum. Mikilvægt er hins vegar að aflétta í hægum en öruggum skrefum,“ segir í minnisblaði Þórólfs. Með tillögunum er dregið mikið úr starfsemi smitrakningarteymisins og áherslan lögð á framkvæmd sóttvarnareglna innan heimila, vinnustaða og hópa. Þrátt fyrir að breytingar hafi verið gerðar á sóttkví og smitgát leggur Þórólfur ekki til þess að lengd einangrunar verði stytt, líkt og mörg önnur nágrannalönd hafa verið að gera að undanförnu og margir hafa kallað eftir, þar á meðal Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Einangrun þeirra sem greinast smitaðir verður því áfram sjö dagar en starfsmenn Covid-göngudeildarinnar geta þó ákveðið lengri einangrun telji þeir nauðsyn til. Þá verða almennar leiðbeiningar um einangrun óbreyttar. Fleiri muni greinast í skólum með breytingunum í dag Ómíkron afbrigði veirunnar er uppistaðan í þeim mikla fjölda sem er að greinast núna en einnig eru um tíu prósent enn að greinast með delta afbrigðið. Dregið hefur úr alvarlegum veikindum á spítalanum en þeim sem eru með vægari veikindi hefur fjölgað. Að sögn Þórólfs er það nú áskorun Landspítala að halda starfseminni gangandi með mikinn fjölda smitaðra. Hann telur ljóst að með þeim breytingum sem tilkynntar voru í dag muni smituðum líklega fjölda í skólum og hjá börnum á leik og grunnskólaaldri. Heilbrigðisráðherra segist munu tilkynna afléttingaráætlun á föstudaginn. „Tilslakanir í kjölfarið á ýmsum samfélagslegum aðgerðum munu á hinn bóginn að líkindum leiða til fjölgunar smita í eldri aldurshópum. Mikilvægt er hins vegar að sú fjölgun leiði ekki til fjölgunar á alvarlegum veikindum og spítalainnlögnum,“ segir í minnisblaði Þórólfs.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Kynna afléttingaáætlun fyrir Ísland á föstudag Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra minnir á að Landspítalinn starfi enn á neyðarstigi. Gæta þurfi bæði jafnræðis og meðalhófs við ákvarðanir. Tíu manna samkomubann er áfram í gildi í landinu en Willum boðar kynningu á afléttingaráætlun á föstudag. 25. janúar 2022 13:07 Hjarðónæmi fyrir páska Sóttvarnalæknir og Kári Stefánsson telja báðir líklegt að við verðum laus við faraldurinn fyrir páska. Tillögur að afléttingaráætlun verða kynntar lok vikunnar en Kári segir ekki eftir neinu að bíða og vill afnema bæði sóttkví og einangrun. 24. janúar 2022 17:47 Danir losna nú úr einangrun þegar þeir eru einkennalausir Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að breyta reglum um einangrun vegna kórónuveirusmita á þann veg að smitaðir einstaklingar losna nú úr einangrun þegar þeir eru einkennalausir. 24. janúar 2022 14:23 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Sjá meira
Kynna afléttingaáætlun fyrir Ísland á föstudag Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra minnir á að Landspítalinn starfi enn á neyðarstigi. Gæta þurfi bæði jafnræðis og meðalhófs við ákvarðanir. Tíu manna samkomubann er áfram í gildi í landinu en Willum boðar kynningu á afléttingaráætlun á föstudag. 25. janúar 2022 13:07
Hjarðónæmi fyrir páska Sóttvarnalæknir og Kári Stefánsson telja báðir líklegt að við verðum laus við faraldurinn fyrir páska. Tillögur að afléttingaráætlun verða kynntar lok vikunnar en Kári segir ekki eftir neinu að bíða og vill afnema bæði sóttkví og einangrun. 24. janúar 2022 17:47
Danir losna nú úr einangrun þegar þeir eru einkennalausir Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að breyta reglum um einangrun vegna kórónuveirusmita á þann veg að smitaðir einstaklingar losna nú úr einangrun þegar þeir eru einkennalausir. 24. janúar 2022 14:23