Annar Letti til Eyja

Sandra Voitane mun hitta fyrir landa sinn Olgu Sevcova (t.h.) …
Sandra Voitane mun hitta fyrir landa sinn Olgu Sevcova (t.h.) hjá ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Lettneska landsliðskonan Sandra Voitane hefur samið við kvennalið ÍBV í knattspyrnu um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Þar með hefur ÍBV fengið tvo nýja leikmenn í sínar raðir í dag.

Sandra, sem er 22 ára gömul, kemur til með að hitta tvo samlanda sína fyrir hjá félaginu, þær Olgu Sevcovu og Viktoriju Zaicikovu, sem léku báðar vel með Eyjakonum á síðasta ári.

Hún lék síðast með Wacker Innsbruck í Austurríki en hefur einnig leikið í Þýskalandi og á Kýpur. Í Þýskalandi lék hún með Meppen í efstu deild árið 2020 og varð þar með fyrsti Lettinn til að spila í deildinni.

Á Kýpur lék Voitane með Apollon Limassol, sem Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir leikur með um þessar mundir.

Sandra getur leikið margar stöður á vellinum en hjá lettneska landsliðinu hefur hún að mestu leyti leikið sem bakvörður í síðustu verkefnum. Hún á 39 leiki að baki fyrir landsliðið og hefur skorað í þeim 12 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka