Innlent

Ör­lætis­gjörningur ríkis­lög­reglu­stjóra til tals á þinginu

Jakob Bjarnar skrifar
Þórhildur Sunna vildi vita hvort Guðrún Hafsteinsdóttir ætlaði að beita sér fyrir því að þessar 500 milljónir sem Haraldur Johannessen gaf verði eltar? Hún spurði fyrir hönd ríkissjóðs.
Þórhildur Sunna vildi vita hvort Guðrún Hafsteinsdóttir ætlaði að beita sér fyrir því að þessar 500 milljónir sem Haraldur Johannessen gaf verði eltar? Hún spurði fyrir hönd ríkissjóðs. vísir/vilhelm

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati sótti að Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra á þingi nú fyrir stundu og spurði hana hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að rannsókn yrði gerð á örlætisgjörningi Haraldar Johannessen, þáverandi ríkislögreglustjóra.

„Ríkissjóður situr uppi með fimm hundruð milljóna króna reikning eftir að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hækkaði lífeyrisréttindi útvalinna undirmanna sinna um helming án þess að hafa til þess heimild.“ Þannig hóf Þórhildur Sunna mál sitt.

Hún fór yfir málið, sagði fjármálaeftirlitið ekki svara fyrirspurn blaðamanna, og að engu slíku máli hafi verið vísað til saksóknara, engin rannsókn yfirstandandi. En Vísir hefur fjallað um málið auk Heimildarinnar.

Þórhildur spurði Guðrúnu hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að þetta mál yrði tekið til rannsóknar.

Guðrún sagði afar mikilvægt að farið sé vel með almanna fé og stofnanir og undirstofnanir geri það. En hún taldi það ekki sitt heldur hlyti það að vera saksóknara að ákveða hvort farið yrði í slíka rannsókn.

Þórhildur sagðist vera að spyrja ráðherra hvort hún ætlar að beina þessu til saksóknara? Og spurði fyrir hönd ríkissjóðs, hvorki meira né minna. Hún minnti á að þessi sami ríkislögreglustjóri hafði sagt eitthvað á þá leið í viðtali þegar hann lét að störfum að það væri efni í annað og dýpra viðtal, um hvað gengið hefði á bak við tjöldin. Og þar væri þá undirliggjandi hótun.

Guðrún ítrekaði þá fyrra svar sitt; að ráðherra geti ekki metið það hvort þarna hafi eitthvað saknæmt átt sér stað heldur erum við með stofnanir til að meta það. Sem sagt saksóknara að meta slíkt en ekki ráðherra.


Tengdar fréttir

Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf?

Hæstaréttarlögmaður veltir því fyrir sér hvernig ríkið ætli að endurheimta fé sem fyrrverandi Ríkislögreglustjóri gaf undirmönnum sínum rétt fyrir eigin starfslok. Hann segir háttsemi Ríkislögreglustjóra líklega bótaskylda og jafnvel refsiverða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×