Fimmtán ára gamall sími á sjö milljónir Máni Snær Þorláksson skrifar 2. febrúar 2023 16:56 Steve Jobs, stofnandi og fyrrum forstjóri Apple, með fyrstu útgáfu iPhone símans. Getty/Jon Furniss Fyrsti iPhone síminn kom út í júní árið 2007 og seldist í sex milljónum eintaka. Eitt þessara eintaka er nú til sölu á uppboði hjá bandaríska uppboðshúsinu LCG Auctions. Búist er við því að síminn seljist á yfir 50 þúsund dollara, eða rétt rúmlega sjö milljónir í íslenskum krónum.
Karen Green er núverandi eigandi símans en hún fékk hann að gjöf þegar hún byrjaði í nýju starfi. Green opnaði ekki símann á sínum tíma þar sem hún átti nú þegar nýjan síma. Þessi iPhone sími endaði því uppi á hillu á heimili Green, ennþá í plastinu. Hún segir símann hafa legið á hillunni, vafinn inn í náttföt, árum saman. Í október síðastliðnum komst hún svo að því að eins sími hefði selst á uppboði fyrir rúmlega 39 þúsund dollara, um 5,5 milljónir í íslenskum krónum. Green hafði í kjölfarið samband við uppboðshúsið sem seldi símann og sagðist eiga eins síma. Mark Montero, stofnandi LCG Auctions, segir í samtali við Business Insider að Green hafi alls ekki verið sú eina sem hafði samband eftir að síminn var seldur. „Við fengum símtöl frá öllum en 99% þeirra voru ekki með eins síma,“ segir Montero. Green var þó með rétta símann og því var hann settur á uppboð. Uppboðið hófst í dag og því líkur þann 19. febrúar næstkomandi.
Apple Tækni Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Tölum um neytendamál! Samstarf Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Viðskipti innlent Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Viðskipti innlent Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Viðskipti innlent Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira