Miðflokkurinn nálægt því að þurrkast út af þingi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 18. apríl 2021 18:31 Miðflokkurinn er nálægt því að þurrkast út af Alþingi samkvæmt nýrri könnun og mælist með einungis 5,3% fylgi. Fylgið hefur dregist saman um rúman helming frá síðustu kosningum.
Maskína gerði könnunina fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar á dögunum 8. til 15. apríl. Fylgi Miðflokksins hefur dalað nokkuð í könnunum Maskínu undanfarið; var 7,3% í desember en 6,1% í mars. Flokkurinn hlaut 11,1% fylgi í síðustu kosningum árið 2017 og sjö þingsæti. Frá því að tveir þingmenn Flokks fólksins gengu í raðir Miðflokksins í ársbyrjun 2019 hefur hann verið fjölmennasti stjórnarandstöðuflokkurinn á Alþingi. Fylgi allra stjórnarflokkanna hækkar aftur á móti. Vinstri Grænir mælast næststærsti flokkurinn með 15,2% miðað við 13,2% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins stendur í 23,8% og Framsóknarflokksins í 11,1%. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagðí Víglínunni á Stöð 2 í dag að eðlilegt væri að kanna möguleika á áframhaldandi stjórnarsamstarfi fengju flokkarnir til þess umboð.vísir/Einar Saman eru stjórnarflokkarnir með um 50% fylgi. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri Grænna, sagði í Víglínunni á Stöð 2 í dag að eðlilegt væri að stjórnarflokkarnir myndu kanna möguleikann á áframhaldandi samstarfi fengju þeir til þess umboð. „Ég held að það væri mjög eðlilegt að þessir flokkar myndu setjast niður og ræða möguleika á framhaldi. En við höfum sagt það núna eins og við sögðum fyrir síðustu kosningar að við erum ekki að útiloka neinn frá samstarfi og erum ekki að lofa neinu um samstarf,“ sagði Katrín og bætti við að það hafi ekki reynst farsælt að vera með of miklar yfirlýsingar og útiloka samstarfsmöguleika. „Það var nú kannski bara eftir þá reynslu sem við öðluðumst eftir kosningarnar 2016, þar sem var mjög erfitt að mynda ríkisstjórn og miklar yfirlýsingar höfðu verið gefnar fyrir kosningar, að við tókum þann lærdóm af því að vera ekki með of miklar yfirlýsingar.“ „En færi það svo að þessir flokkar fengu meirihluta væri það mjög eðlilegt að við myndum setjast niður og kanna möguleika á framhaldi,“ sagði Katrín í Víglínunni. Þannig það væri fyrsti kostur? „Það hangir auðvitað svo margt á niðurstöðum kosninga og þessi ríkisstjórn var mjög óvænt niðurstaða síðast og spratt meðal annars upp úr því hversu erfitt það hafði reynst að mynda ríkisstjórn áður. En þetta hefur gengið vel og þess vegna segi ég að það væri undarlegt að láta ekki reyna á framhaldið. En ég ætla ekki að útiloka neina aðra kosti hins vegar,“ sagði Katrín. Fylgi Samfylkingarinnar dalar enn Samfylkingin heldur áfram að dala í könnunum Maskínu. Fylgið stendur nú í 12,8% og hefur lækkað verulega frá áramótum þegar það var 17,9%. Aðrir flokkar í stjórnarandstöðu lækka einnig lítillega. Píratar um eitt prósent og mælast með 11,1% fylgi en Viðreisn með 11,5%. Ólíkt því sem verið hefur í síðustu könnunum mælist Sósíalistaflokkur Íslands ekki inni á þingi með 4,1% fylgi. Fylgi Flokks fólksins hækkar hins vegar aðeins og flokkurinn mælist nú inni með 5% fylgi. Maskína gerði könnunina á dögunum 8. til 15. apríl og svarendur voru 892 talsins.
Alþingi Alþingiskosningar 2021 Miðflokkurinn Skoðanakannanir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira