Lífið

Hannaði taubleyju sem fékk nafn sonarins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arna Ýr selur taubleyjur sem hún segir að hafi alla þá eiginleika sem foreldrar vilja. 
Arna Ýr selur taubleyjur sem hún segir að hafi alla þá eiginleika sem foreldrar vilja. 

Eftir að hafa eignast tvö börn og aldrei verið ánægð með bleyjurnar sem framleiddar eru, réðst Arna Ýr Jónsdóttir sjálf í verkefnið og hannar nú sjálf bleyjur sem bæði Krónan og Hagkaup ætla að setja í sölu.

Sindri Sindrason ræddi við Örnu um málið í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

„Ég byrjaði með taubleyjuverslun í byrjun árs 2020 áður en Covid skall á sem er mjög fjarstæðukennd hugsun í dag því það er svo langt síðan að Covid var. Svo eignaðist ég barn númer tvö hann Nóa og fór í fæðingarorlof. Ég var búinn að lofa sjálfum mér að fara ekki að brasa eitthvað meira í fæðingarorlofinu því verslunin fæddist í fyrsta orlofinu. Ég fór að sanka að mér upplýsingum um hvað það er sem foreldrar vilja sjá í taubleyjum. Það er svo erfitt að setja öll atriðin saman í eina bleyju og finna það sem svo margir eru að leita eftir,“ segir Arna sem ákvað að búa til bleyju í höfuðið á syni sínum.

„Það er mjög erfitt að hanna taubleyju því þetta á að vera ein stærð fyrir alla og á að passa á börnin alveg út bleyju tímann. Það er það erfiðasta, að hanna þetta stærðarkerfi. Svo er það líka rakadrægnin því þau pissa mismikið. Sniðið þarf að passa fyrir feit og sæt læri og líka minni læri.“

Hún segir að hennar bleyjur séu með ákveðna eiginleika sem ættu að nýtast vel.

„Ég er rosalega framtakssöm og hvatvís og margir segja að ég sé rosalega áhættusækin manneskja. Það er svolítið það sem þessi unga kynslóð gerir, hefur trú á einhverju og lætur bara vaða,“ segir Arna Ýr en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×