Hættir á skrifstofu borgarstjóra vegna Vigdísar Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 9. júní 2021 17:29 Vigdís og Helga hafa sakað hvor aðra um einelti síðustu ár. Vísir/Vilhelm Helga Björg Ragnarsdóttir, fyrrum skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra, hefur verið færð til í starfi að eigin ósk. Hún segist hafa orðið fyrir stöðugu áreiti og ofsóknum af hálfu borgarfulltrúa Miðflokksins, Vigdísar Hauksdóttur. Hún telur að kerfið hafi brugðist sér í málinu.
Helga Björg steig fram síðasta sumar og tjáði sig opinberlega um framgöngu borgarfulltrúans gegn sér. Hún sagði þá að sumarfrí hennar hefði varpað nýju ljósi á starfsumhverfið, hún gæti ekki lengur setið á sér án þess að bregðast opinberlega við ummælum Vigdísar um deilur þeirra innan vinnustaðarins. Og nú virðist fjarlægð hennar frá starfinu aftur hafa orðið til þess að fá hana til að endurhugsa stöðuna. Undanfarna mánuði hefur hún unnið að verkefni á sviði jafnlaunamála í samstarfi Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga samhliða námi í kynjafræði. „Fjarlægðin gerði mér kleift að taka erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir og óskaði ég fyrir nokkru síðan eftir tilfærslu í starfi, úr starfi skrifstofustjóra skrifstofu borgarstjóra og borgarritara yfir í jafnlaunamálin,“ skrifar Helga á Facebook. Fallist var á þá beiðni í lok maí. Hún hefur nú hafið störf á mannauðs- og starfsumhverfissviði. Langar deilur Vigdís og Helga Björg hafa lengi sakað hvor aðra um einelti og trúnaðarbrot. Deilur þeirra hófust þegar Vigdís fór að tjá sig opinberlega um dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Reykjavíkurborg var gert að greiða starfsmanni ráðhússins skaðabætur vegna framkomu Helgu Bjargar í hans garð. Vigdís fékk þá skammir frá þáverandi borgarritara, Stefáni Eiríkssyni, sem taldi hana hafa brotið trúnað. Deilur þeirra náðu svo hámarki í byrjun síðasta árs þegar Vigdís fór að krefjast þess að Helga sæti ekki fundi sem hún sæti sjálf. Þegar fjarfundabúnaður var síðan tekinn til notkunar vegna samkomubanns segir Helga að mótmæli Vigdísar hafi falist í munnlegum athugasemdum og bókunum „auk þess sem borgarfulltrúinn snýr í mig baki, eins og hún hefur ítrekað fjallað um sjálf opinberlega,“ eins og Helga lýsti því þegar hún tjáði sig fyrst um málið á Facebook í fyrra. Helga Björg Ragnarsdóttir hefur starfað sem skrifstofustjóri hjá skrifstofu borgarstjóra síðan árið 2012.visir Kerfið brást Helga segist síðan hafa óskað eftir skoðun á því hvort framferði Vigdísar bryti í bága við siðareglur kjörinna fulltrúa og síðan hvort framkoma hennar félli undir skilgreiningu á einelti. „Þar sem borgarfulltrúinn kom sér undan þátttöku í rannsóknum á framkomu sinni hefur ekki fengist niðurstaða í málin,“ segir hún. Hún telur kerfið skorta öll úrræði til að takast á við það þegar borgarfulltrúar fara út fyrir umboð sitt og hafa afskipti af einstaka starfsmannamálum „til dæmis með mannorðsmeiðandi og ósönnum ummælum um starfsfólk“. „Sömuleiðis hefur því mistekist að tryggja með fullnægjandi hætti öryggi starfsfólks gagnvart ofbeldisfullri framkomu borgarfulltrúa jafnvel með hótunum um líkamsmeiðingar á lokuðum fundum,“ segir hún og vonar að kjörnir fulltrúar ráðist í nauðsynlegar úrbætur til að tryggja „heilnæmt og öruggt starfsumhverfi fyrir okkur öll“.
Reykjavík Borgarstjórn Stjórnsýsla Tengdar fréttir Skrifstofustjóri borgarstjóra: „Skaðlegt að kjörnir fulltrúar þurfi ítrekað að verjast árásum borgarfulltrúans á mig“ Það er skaðlegt að kjörnir fulltrúar þurfi ítrekað að verjast árásum borgarfulltrúans á mig og annað starfsfólk borgarinnar í stað þess að geta einbeitt sér að því að vinna að góðum málum í þágu borgarbúa. Það er líka skaðlegt fyrir mig, fjölskyldu mína og mína heilsu,“ skrifar Helga Björg Ragnarsdóttir skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra í færslu á Facebook-síðu sinni. 14. ágúst 2020 23:10 Meint einelti í Ráðhúsinu: Snörp orðaskipti þegar Vigdís og Dóra Björt tókust á í Vikulokunum Það kom til snarpra orðaskipta á milli Vigdísar Hauksdóttur, oddvita Miðflokksins í borgarstjórn og Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, oddvita Pírata í borgarstjórn, Í vikulokunum á Rás 1 í dag þegar talið barst að stöðu mála í Ráðhúsinu eftir að tilkynnt var um vinnslu máls samkvæmt bráðabirgðaverkferli vegna kvartana skrifstofustjóra í ráðhúsinu vegna meints eineltis Vigdísar í hans garð. 22. júní 2019 14:30 Óvirðing ef ekki lítilsvirðing og „undirmenn ekki dýr í hringleikahúsi“ Skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra fær bágt fyrir í nýlegum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá fær starfsmaður borgarinnar skaðabætur. 12. júlí 2018 13:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Sjá meira
Skrifstofustjóri borgarstjóra: „Skaðlegt að kjörnir fulltrúar þurfi ítrekað að verjast árásum borgarfulltrúans á mig“ Það er skaðlegt að kjörnir fulltrúar þurfi ítrekað að verjast árásum borgarfulltrúans á mig og annað starfsfólk borgarinnar í stað þess að geta einbeitt sér að því að vinna að góðum málum í þágu borgarbúa. Það er líka skaðlegt fyrir mig, fjölskyldu mína og mína heilsu,“ skrifar Helga Björg Ragnarsdóttir skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra í færslu á Facebook-síðu sinni. 14. ágúst 2020 23:10
Meint einelti í Ráðhúsinu: Snörp orðaskipti þegar Vigdís og Dóra Björt tókust á í Vikulokunum Það kom til snarpra orðaskipta á milli Vigdísar Hauksdóttur, oddvita Miðflokksins í borgarstjórn og Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, oddvita Pírata í borgarstjórn, Í vikulokunum á Rás 1 í dag þegar talið barst að stöðu mála í Ráðhúsinu eftir að tilkynnt var um vinnslu máls samkvæmt bráðabirgðaverkferli vegna kvartana skrifstofustjóra í ráðhúsinu vegna meints eineltis Vigdísar í hans garð. 22. júní 2019 14:30
Óvirðing ef ekki lítilsvirðing og „undirmenn ekki dýr í hringleikahúsi“ Skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra fær bágt fyrir í nýlegum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá fær starfsmaður borgarinnar skaðabætur. 12. júlí 2018 13:09