Ronaldo kominn í ótímabundið leyfi og efstur á óskalista nýs eiganda Chelsea Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. júlí 2022 07:30 Gæti Ronaldo spilað í bláu á komandi leiktíð? Robbie Jay Barratt/Getty Images Það verður sjaldan sagt að það ríki lognmolla í kringum portúgalska framherjann Cristiano Ronaldo. Hann mætti ekki til æfinga hjá Manchester United í gær, er efstur á óskalista nýs eiganda Chelsea og er kominn í ótímabundið leyfi.
Hinn 37 ára gamli Ronaldo var einn af fáum ljósum punktum í annars slöku liði Manchester United á síðustu leiktíð. Mikið gekk á innan vallar sem utan en endurkoma Ronaldo til Manchester var ljósið í myrkrinu fyrir stuðningsfólk félagsins, sumt þeirra allavega. Ronaldo átti að snúa til baka úr sumarfríi í gær en skömmu áður hafði hann látið þau orð falla að hann væri ósáttur með stöðuna á leikmannahópi liðsins og fannst eins og félagið væri ekki að leggja nægilega mikinn metnað í að sækja nýja leikmenn. Í kjölfarið fóru þeir orðrómar á kreik að Ronaldo vildi fara frá félaginu en eigendur Man United eru ekki á þeim buxunum að selja sína skærustu stjörnu. Portúgalinn fær hins vegar oftar nær það sem hann vill. Eftir að Man United gaf út yfirlýsingu þess efnis að Ronaldo væri ekki á æfingu liðsins á mánudag vegna „fjölskylduaðstæðna“ sást hann á æfingasvæði portúgalska landsliðsins í Portúgal. Skömmu síðar gaf vinnuveitandi hans út þá yfirlýsingu að Ronaldo væri kominn í ótímabundið leyfi. Cristiano Ronaldo not expected to attend Man Utd pre-season training for second consecutive day, citing family reasons. Currently unclear if/when 37yo will return. #MUFC head on tour to Thailand + Australia on Friday. With @lauriewhitwell @TheAthleticUK https://t.co/QqP4BPpFvD— David Ornstein (@David_Ornstein) July 5, 2022 Man United er ekki í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og það er svo gott sem vitað að Ronaldo elskar ekki aðeins að spila í keppninni, hann elskar eigin tölfræði í keppninni. Alls hefur Ronaldo spilað 183 leiki i Meistaradeild Evrópu, skorað 140 mörk og lagt upp 48 til viðbótar. Þá hefur hann unnið keppnina fimm sinnum. Sem stendur eru fá lið sem hafa efni á launapakka Ronaldo en hann er talinn vera með rúma hálfa milljón punda í vikulaun hjá Man Utd. Chelsea er hins vegar eitt þeirra liða sem gæti borgað þann launapakka og þá skemmir ekki fyrir að Todd Boehly, nýr eigandi félagsins, er mikill aðdáandi Ronaldo. Stóra spurningin er hvort Thomas Tuchel, þjálfari liðsins, vilji 37 ára gamla ofurstjörnu í framlínu sína.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ Handbolti Fleiri fréttir Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Sjá meira