Viðskipti innlent

Garðar og Smári bætast í hópinn hjá Endor

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Garðar og Smári mættir til starfa.
Garðar og Smári mættir til starfa. Endor

Garðar Rúnarsson netsérfræðingur og Smári Ívarsson netöryggissérfræðingur hafa gengið til liðs við Endor. Frá þessu segir í tilkynningu frá fyrirtækinu sem sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði upplýsingatækni.

Garðar á að baki sex ára starf hjá Advania sem þriðja stigs netsérfræðingur og samhliða því hefur hann verið að kenna CCNA hjá NTV. Smári kemur frá Fortinet, þar sem hann hefur starfað í þrjú ár sem þriðja stigs netöryggissérfræðingur. Áður var hann starfsmaður Sensa í fimm ár.

„Fyrirtæki og stofnanir takast á við krefjandi áskoranir í sífellt breytilegu tækniumhverfi. Við erum því sérlega ánægð að fá Garðar og Smára til liðs við okkur í þau spennandi verkefni sem framundan eru. Þekking þeirra og reynsla er okkur mikils virði og munu viðskiptavinir okkar og samstarfsaðilar njóta þeirrar sérfræðiþekkingar en einnig munu Garðar og Smári leiða vinnu félagsins við frekari skilgreiningu á virðisaukandi þjónustum,“ segir Gunnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Endor, í tilkynningu.

Endor er sérfræðifyrirtæki í eigu Sýnar sem veitir þjónustu og ráðgjöf á sviði upplýsingatækni og þá sérstaklega áskorunum tengdum rekstri upplýsingatækniumhverfa, hagkvæmni reikniafls og meðhöndlun sívaxandi gagnamagns. Félagið á og rekur tvö erlend dótturfélög, EC Sweden AB (stofnað 2019) og EC Germany GmbH (stofnað 2020). Hjá félaginu starfa nú 25 sérfræðingar.

Vísir er í eigu Sýnar sem er eigandi Endors.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×