Rökræddu stöðuna í stjórnmálum: „Eigum að ná miklu meiri árangri sem sjálfstæð þjóð“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 18. apríl 2021 12:11 Stjórnmálamennirnir og fyrrverandi ráðherrarnir Þorsteinn Pálsson og Guðni Ágústsson tókust á í eldhressu spjalli um stöðuna í íslenskri pólitík. Íslenskir stjórnmálamenn standa sig betur á krepputímum og stjórnvöldum er vel treystandi til að takast á við áföllin af völdum heimsfaraldurs innanlands að mati Guðna Ágústssonar. Þorsteinn Pálsson vill hins vegar hefja gjaldmiðlasamstarf við Evrópusambandið samhliða endurreisn ríkisfjármála.
Stjórnmálamennirnir og fyrrverandi ráðherrarnir Þorsteinn Pálsson og Guðni Ágústsson tókust á í eldhressu spjalli um stöðuna í íslenskri pólitík á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Endurreisn ríkisfjármála og viðspyrn atvinnulífsins er stærsta málið á dagskrá að mati Þorsteins. Evrópusamstarf eða ekki „Ég hef bara séð eina tillögu á móti þessum ráðstöfun ríkisstjórnarinnar og það er tillaga Viðreisnar um að við hefjum þegar í stað gjaldeyrissamstarf við Evrópusambandið um það að halda krónunni en tyggja stöðugleika með svipuðum hætti og í Danmörku og þannig komast hjá því að hækka skatta eða skerða lífeyri,“ sagði Þorsteinn, en líkt og kunnugt er sagði Þorsteinn skilið við sinn gamla flokk Sjálfstæðisflokksins og gekk til liðs við Viðreisn þegar sá síðastnefndi var stofnaður. Engan skyldi undra að Framsóknarmaðurinn Guðni Ágústsson kvaðst ósammála því að aukið samstarf við Evrópusambandið væri rétta leiðin. „Evrópusambandsaðildin á ekki að vera hér deiluefni við þessar aðstæður. Og það er ekki á dagskrá. Við erum hluti af harmi heimsins,“ sagði Guðni og vísaði þar til áhrifanna af völdum heimsfaraldurs kórónuveiru. Hann lýsti sérstaklega áhyggjum af því höggi sem ferðaþjónustan hefur orðið fyrir í heimsfaraldrinum. „Hvað gerist þá? Guð almáttugur kemur með eldgos eins og Eyjafjallagos, og nú blasir við, að ég held, bjartir tímar. Við erum grænt land, við eigum að ná miklu meiri árangri sem sjálfstæð þjóð. Á að verja okkar land fyrir covid og þetta gos, ég er búin að fara og sjá það, þetta er eins og falleg þjóðhátíð,“ sagði Guðni. Sterkari í kreppu og sundruð stjórnarandstaða Mikilvægast sé að huga að því að hægt sé að opna landið. „Íslendingar eru miklu betri stjórnmálamenn í kreppu heldur en í uppgangi og í kreppunum vinna þeir stærstu sigra,“ sagði Guðni. Þorsteinn ítrekaði mikilvægi Evrópusamstarfs. „Við erum aðilar að innri markaði Evrópusambandsins og öll efnahagsstarfsemi í landinu hún byggir á lögum Evrópusambandsins. Þannig að öll dagleg pólitík er auðvitað um leið Evrópupólitík,“ sagði Þorsteinn. Þá vildi Guðni meina að stjórnarandstaðan sé bitlaus en hann kveðst hafa mikla trú á þeim sem nú halda um stjórnartaumana. „Mér finnst að stjórnvöldin hafi tök á þessu og mér finnst að landið liggi með ríkisstjórnarflokkunum því að það er sundrung hinu megin, það er ekki ein stjórnarandstaða. Þannig ég er á því að við munum eiga góð næstu sjö ár, eldgosið hjálpar í því,“ sagði Guðni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Efnahagsmál Evrópusambandið Alþingiskosningar 2021 Sprengisandur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira