Mátti ekki spila, mátti svo spila, mátti svo ekki spila en mátti loks spila Sindri Sverrisson skrifar 21. janúar 2022 15:31 David Mandic á ferðinni í tapinu gegn Svartfjallalandi í MVM-höllinni í Búdapest í gær. Getty/Sanjin Strukic Segja má að sóttvarnamál séu í ólestri á Evrópumótinu í handbolta í Ungverjalandi og Slóvakíu, þar sem kórónuveirusmitum fjölgar stöðugt. Það hvernig haldið er utan um sóttvarnamál hefur sennilega bitnað verst á David Mandic, hornamanni Króatíu.
Mandic fékk á endanum að spila með Króatíu gegn Svartfjallalandi í gær, í milliriðli Íslands, en skoraði aðeins eitt mark í 32-26 tapi Króata. Í aðdraganda leiksins fékk hann hins vegar mjög misvísandi skilaboð frá mótshöldurum um það hvort hann mætti spila. Forsaga málsins er sú að Mandic lék fyrsta leik Króatíu, gegn Frakklandi, og var þar rekinn af velli og tók út leikbann í næsta leik, gegn Serbíu. Hann missti hins vegar líka af leik þrjú, gegn Úkraínu, eftir að hafa greinst með kórónuveirusmit. Þar virðast hins vegar hafa orðið ansi slæm mistök, og því hefur verið haldið fram að ruglingur hafi orðið með sýni og að Matej Mandic, þriðji markvörður Króata, hafi verið hinn smitaði. David Mandic, sem hafði farið heim til Zagreb eftir að hann átti að hafa greinst jákvæður, greindist alla vega tvisvar með neikvæð sýni þar og aftur með neikvætt sýni eftir að hann kom til Búdapest til að freista þess að spila áfram með króatíska landsliðinu. Hann var afar ósáttur þegar hann var spurður út í málið eftir leikinn í gær: „EHF verður að gera eitthvað því það er ekkert vit í þessu. Ég mætti á hótelið og var sagt að ég myndi pottþétt ekki fá að spila [gegn Svartfjallalandi] en að ég myndi spila gegn Danmörku. Síðan var sagt að ég gæti spilað. Ég mætti svo í höllina og þá var fyrst sagt að ég mætti ekki spila. Þetta var lýjandi fyrir mig. Ég leit ekki vel út, fann til í bakinu, en það þýðir ekkert að vera með afsakanir og maður fórnar sér fyrir Króatíu. Þetta er búið að vera mjög kaotískt og ég veit bara ekki hvað er hægt að segja,“ er haft eftir Mandic á vef Naslovnica. Ísland og Króatía mætast á mánudaginn en fyrst mætir Króatía liði Danmerkur á laugardaginn, og Ísland liði Frakklands.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Djokovic segir þjálfaranum upp Sport Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fótbolti „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Handbolti „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Handbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ Körfubolti Fleiri fréttir „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Á förum frá Zwickau Blóð, sviti, tár og andvökunætur Guðmundar Handboltaparið flytur suður að tímabilinu loknu Patrekur tekur við kvennaliði Stjörnunnar Guðmundur segist bara hafa sagt sannleikann Ómar Ingi með stórskotasýningu í sigri Magdeburg Valsmenn unnu eins marks sigur í Rúmeníu Lærisveinar Rúnars lentu á hraðahindrun Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni „Við förum upp aftur“ KA valtaði yfir Víking í frestuðum leik Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 26 - 23 | Norðankonur fallnar Sigvaldi tryggði Kolstad Noregsmeistaratitilinn Halldór slapp við fall og úrslitakeppnin klár Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Elvar Örn öflugur og Melsungen stefnir á Evrópu Reistad og Gidsel valin besta handboltafólk í heimi „Breytir eiginlega öllu fyrir mig“ Magdeburg þjarmar að toppliðinu Tyreek Hill reyndi fyrir sér í handbolta: „Vissi ekki hvað þetta var“ Löng ferðalög en ekki erfiður riðill hjá Íslandi í undankeppni EM Sjá meira