Pablo Punyed: Betri á pappír en allt getur gerst í fótbolta Hjörvar Ólafsson skrifar 21. júní 2022 21:48 Pablo Punyed fagnar einu marka Víkings í leiknum með liðsfélögum sínum. Vísir/Getty Víkingur kjöldróg Levadia frá Tallinn í undanúrslitum forkeppni Meistaradeildar Evrópu fyrr í kvöld. Pablo Punyed stjórnaði miðjunni og leik sinna manna af einstakri list, lagði upp tvö mörk og var einn af mönnum leiksins.
Beðið hafði verið með ákveðinni eftirvæntingu eftir leiknum en Arnar Gunnlaugsson hafði talað um að Levadia væri besta liðið í þessu móti. Áhyggjurnar, ef einhverjar voru, reyndust óþarfi því leikurinn endaði 6-1 fyrir Víkinga. Pablo Punyed var spurður að því hvort lausn verkefnisins hafi verið auðveldari en menn bjuggust við. „Þetta var alls ekki auðvelt. Við byrjuðum á því að fá víti á okkur og lenda 1-0 undir en við sýndum geggjaðan karakter í því að koma til baka og íslensku aðstæðurnar hjálpuðu okkur í dag. Mikil rigning og rok en frábær leikur hjá okkur í dag.“ Pablo var þá spurður að því hvað Víkingur var að gera rétt í leiknum í dag. „Það var pressan og augnablikin sem pressan skapaði. Við pressuðum og pressuðum og þegar við vorum með boltann þá vorum við að skapa færi. Svo erum við með menn innanborðs sem hafa x-faktorinn eins og Kristal Mána, Erling og Niko. Þeir gerðu vel frammi og það var frábært að fá þessa menn í gang.“ Fann ekki fyrir meiðslum í þessum leik Pablo var tekinn út af í leiknum á móti ÍBV í síðustu umferð og var hann spurður að því hvernig standið væri á honum en hann átti mjög góðan leik í dag. „Ég var ekki meiddur. Ég fann fyrir einhverju aftan í lærinu og vildi ekki taka sénsinn vitandi af þessum leik þannig að það var ákveðið að taka mig út af í Vestmannaeyjum. Ég var fínn í dag og stefni að því að spila á föstudaginn.“ Að lokum var spurt út í viðureignina á föstudaginn en InterEscaldes bíða Víkinga í úrslitaleiknum um að spila við Malmö í Meistaradeildinni og eru þeir sýnd veiði en ekki gefin að margra mati. „Já á pappírnum þá erum við betri en allt getur gerst í fótboltanum. Við viljum vera faglegir og við vitum að liðið frá Andorra og hægja á tempóinu og við þurfum að vera Víkingur og spila okkar leik. Við höfum gæðin til að klára leikinn en við verðum að taka eitt þrep í einu og komast í okkar takt og klára leikinn á föstudaginn.“
Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Fleiri fréttir Boehly fær að fjúka 2027 Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti