Fólk í heimasóttkví fær heimsóknir en ekki frá lögreglu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. apríl 2021 12:14 Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er kominn aftur til starfa eftir smá frí. vísir/vilhelm Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að eftirlit með fólki sem kemur til landsins og fer í heimasóttkví verði aukið með tvennum hætti. Annars vegar skerpt á símtölum til fólks og þeim fjölgað. Hins vegar fær fólk í heimasóttkví heimsókn frá aðilum sem þó er ekki lögregla.
Nýleg reglugerð á landamærum heimilar öllum sem koma til landsins og hafa dvalarstað að fara í fimm daga heimasóttkví í stað þess að fara á sóttvarnahótel. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til aukið eftirlit með heimasóttkví sem nú er að komast mynd á. Víðir segir eftirlitið fyrst og fremst leiðbeinandi. „Það sem við erum að gera núna er að skerpa á þeim símtölum sem fólk fær. Það fá allir núna eitt símtal og við ætlum að fjölga þeim símtölum. Skerpa á að fara yfir gátlistann. Hjálpa fólki að skilja þetta betur,“ segir Víðir og vísar til þess að fólk hafi verið að túlka sóttkví með ólíkum hætti. „Svo er stefnan að setja í gang heimsóknir sem eru af sama meiði.“ Ræða við öryggisfyrirtæki Með heimsóknum til fólks eigi að hjálpa því að vanda sig í sóttkví, gera hana markvissari og betri. Auka gæði hennar. „Við erum fyrst og fremst að horfa á áhættumatið í þessu eftirliti út frá því að reyna að skerpa á leiðbeiningum og hjálpa fólki að skilja betur.“ Tala þurfi við fólk einu sinni, kannski tvisvar eða jafnvel þrisvar og svo mögulega kíkja í heimsókn til að ganga úr skugga um að fólk sinni sóttkví rétt. „Þetta verður ekki lögreglueftirlit. Ekki lögregla sem fer í heimsóknir eða eitthvað slíkt. Við erum að skoða að gera samninga við aðila, þeir vinna undir faglegri stjórn sóttvarnalæknis. Lögregla fer ekki í þessar heimsóknir.“ Slíkir aðilar gætu verið öryggisfyrirtæki. „Það er alveg möguleiki. Það hafa tvö öryggisfyrirtæki sett sig í samband við okkur og lýst yfir vilja að koma í samstarf. Við erum í miklu samstarfi við þessi fyrirtæki, til dæmis í sóttvarnahúsunum, úti á Keflavíkurflugvelli, í sýnatökum hérna á höfuðborgarsvæðinu og þau hafa verið góðir samstarsðilar. Það gæti verið mjög hentugt að gera það.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Sjá meira