Leikkonan Irene Bedard, konan sem ljéði Pocahontas rödd sína, var handtekinn tvisvar á þremur dögum. Hún var handtekinn um helgina á heimili fyrrverandi eiginmanns og nokkrum dögum síðar á hóteli.
Bedard var handtekin á aðfaranótt laugardags að því fram kemur á vef Page Six á heimili fyrrverandi eiginmanns hennar í Beavercreek í Ohio í Bandaríkjunum. Lögregla mætti á svæðið vegna gruns um heimilisofbeldi. Að sögn lögreglu var leikkonan var undir áhrifum. Leikkonan á að hafa öskrað og lamið 17 ára gamlan son sinn. Sonurinn á að hafa sagt lögregluþjónum að móðir hans væri góð þegar hún væri ekki að drekka áfengi. Sonurinn vildi ekki kæra móður sína.
Nokkrum dögum síðar var hún handtekin á hóteli fyrir að áreita starfsmann í móttöku. Að sögn lögreglu leit Bedard út fyrir að vera undir áhrifum.
Stjarnan talaði fyrir Pocahontas í samnefndri vinsælli Disney-mynd frá árinu 1995 en Mel Gibson talaði fyrir John Smith. Útlit Pocahontas var einnig byggt á Bedard. Stjarna hennar hefur þó skinið skærar en nú.