Aldraða konan sem var skotin með rafbyssu er látin Samúel Karl Ólason skrifar 24. maí 2023 12:01 Clare Nowland er sögð hafa látist á sjúkrahúsi í dag. Eldri áströlsk kona sem skotin var með rafbyssu á dögunum er látin. Lögregluþjónn hefur verið ákærður fyrir að skjóta hina 95 ára gömlu Clare Nowland með rafbyssu þegar hún nálgaðist hann hægt á göngugrind en með hníf í hendi.
Samkvæmt fjölmiðlum í Ástralíu lést Nowland á sjúkrahúsi í dag umkringd fjölskyldu sinni. Fyrr í dag var tilkynnt að lögregluþjónn hefði verið ákærður fyrir að skjóta hana með rafbyssu. Umrætt atvik átti sér stað í bænum Cooma í Nýja Suður-Wales í Ástralíu í síðustu viku. Lögregluþjónar voru þá kallaðir til hjúkrunarheimilis þar sem Nowland var sögð óróleg og með hníf. Tveir lögregluþjónar mættu á vettvang en þá hélt Nowland á steikarhníf. Lögreglustjórinn Peter Cotter segir að Nowland, sem var 43 kíló að þyngd, hafi neitað að leggja hnífinn frá sér og hún hafi verið að nálgast lögregluþjónana tvo, hægt, á göngugrind. Þá skaut lögregluþjónninn Kristian White hana með rafbyssu. Nowland féll í gólfið og höfuðkúpubrotnaði og blæðingu inn á heila. Ríkisútvarp Ástralíu sagði frá því í morgun að White hefði verið ákærður fyrir að skaða Nowland og að sú ákvörðun hafi verið tekin í kjölfar ítarlegrar rannsóknar. Ekki liggur fyrir hvaða áhrif dauðsfall Nowland mun hafa á ákærurnar gegn White. Sjá einnig: Heita því að hlífa engum eftir að öldruð kona með heilabilun var beitt rafbyssu Karen Webb, yfirmaður lögreglunnar í Nýja Suður-Wales, sagði blaðamönnum í morgun að mikilvægt væri að samfélagið gæti treyst lögregluþjónum. Það sé hægt að treysta lögregluþjónum og þetta sé eitt atviki af um tveimur milljónum útkalla á ári hverju.
Ástralía Rafbyssur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira