Fimm Íslendingar með heppnina með sér

Lottó.
Lottó.

Fimm heppnir Íslendingar unnu í jókerútdrætti Víkingalottósins í dag. Tveir voru með fimm jókertölur réttar og fá því hvor um sig 2 milljónir króna. Annar miðinn var keyptur á N1 í Stóragerði en hinn var í áskrift.

Þrír voru svo með fjórar jókertölur réttar og fá 100 þúsund hver. Einn miðinn var keyptur á N1 Stórahjalla í Kópavogi, annar á lotto.is og sá þriðji var í áskrift.

Einn heppinn Norðmaður vann þó 1. vinning í Víkingalottóinu sjálfu. Hann var með allar sex tölurnar réttar og fær í sinn hlut tæpar 39 milljónir króna.

Stærsti potturinn, rétt rúmir þrír milljarðar króna, gekk ekki út að þessu sinni.

Vinningstölur kvöldsins: 9, 15, 21, 32, 36, 37
Víkingatalan var 2
Jókertölur:  6, 3, 7, 8, 2

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert