Segir hagsmuni ferðaþjónustunnar líka hagsmuni þjóðarinnar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 20. júlí 2021 08:48 Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Egill Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir ferðaþjónustuna hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum eftir að tilkynnt var að bólusettir ferðamenn yrðu krafðir um neikvætt Covid-19 próf við landamærin. Hagsmunir ferðaþjónustunnar séu ekki aðeins hennar, heldur þjóðarinnar allrar. „
Hagsmunir ferðaþjónustunnar eru gríðarlegir í efnahagslegu tilliti fyrir þjóðarbúið og alla þjóðina. Þannig að það er ekki eins og þetta snúist um ferðaþjónustuna annars vegar og þjóðina hins vegar,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). Bjarnheiður ræddi nýjar takmarkanir á landamærunum og áhrif þeirra á ferðaþjónustuna í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir allar takmarkanir á landamærum hafa letjandi áhrif á ferðaþjónustuna en enn eigi eftir að koma í ljós hver áhrif nýrra takmarkana verða. „Við vitum að allar svona takmarkanir hafa letjandi áhrif og geta jafnvel komið í veg fyrir að fólk bóki ferðir eða fái grundvallaða ástæðu til að afbóka feðrir sem það er að fara í en við vonum að það sé ekki þannig,“ segir Bjarnheiður. Breytingarnar voru tilkynntir í gær og munu taka gildi næsta mánudag. Allir ferðamenn, sama hvort þeir eru bólusettir eða staðfesta fyrri sýkingu, munu þurfa að framvísa neikvæðu PCR eða antigen hraðprófi sem ekki er eldra en 72 klukkustunda gamalt. Bjarnheiður segir nýjar takmarkanir ekki endilega jákvæðar, en borið hefur á því að ferðaþjónustan hafi vart ráðið við þann fjölda ferðamanna sem hingað hefur sótt undanfarnar vikur. „Það hafa komið nokkrir flöskuhálsar á ákveðnum sviðum en ég hef nú trú á því að við myndum leysa úr því eins og flestum áskorunum sem okkur hafa mætt í gegn um tíðina,“ segir Bjarnheiður. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, lýsti miklum vonbrigðum með nýjar takmarkanir í gær. Hann segir marga forsvarsmenn ferðaþjónustufyrirtækja með kjálkann í gólfinu. „Þeim finnst bara hreinlega óskiljanlegt að það skuli vera lagt í svona ákvarðanir og telja að þetta muni hafa töluverð neikvæð áhrif,“ sagði Jóhannes Þór í samtali við fréttastofu í gær. Bjarnheiður tekur undir þetta og segir ferðaþjónustuna finna fyrir miklum vonbrigðum með það að stíga hafi þurft skref til baka. Þó sé fólk ánægt með að antigen prófin séu tekin gild. „Jafnframt er fólk ánægt með það að það skuli þó vera tekin gild þessi antigen próf. Ef það hefðu bara verið þessi PCR próf sem hefðu verið tekin gild hefði það verið miklu alvarlegra. Bæði þar sem það er bæði dýrara að fá þau og erfitt að nálgast þau. Það er ekki víst að fólk hefði náð þeim fyrir ferðina sína þannig að það er jákvætt. Þetta er ekki alls staðar eins aðgengilegt og þetta er hér.“
Ferðamennska á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Hertar aðgerðir í ósamræmi við traust á bólusetningum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra óttast að aðgerðir innanlands verði hertar á ný þegar tilefni til þess sé ekki endilega til staðar. Hún virðist ekki sannfærð um réttmæti þeirra aðgerða á landamærunum sem kynntar voru í dag. 19. júlí 2021 22:00 Hissa að stjórnvöld hafi ekki staðið í lappirnar gagnvart sóttvarnalækni Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það alvarleg vonbrigði að stjórnvöld hafi ákveðið að krefja bólusetta ferðamenn um neikvætt Covid-19 próf við landamærin. 19. júlí 2021 16:12 Talsvert veikir í farsóttarhúsi þrátt fyrir bólusetningu Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af sjö utan sóttkvíar. Mjög hefur fjölgað í farsóttarhúsi síðustu daga en á fjórða tug eru þar í einangrun vegna kórónuveirusmits. Forstöðumaður segir að fólkið sé talsvert veikt, þrátt fyrir bólusetningu. 17. júlí 2021 12:49 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Fleiri fréttir Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Sjá meira
Hertar aðgerðir í ósamræmi við traust á bólusetningum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra óttast að aðgerðir innanlands verði hertar á ný þegar tilefni til þess sé ekki endilega til staðar. Hún virðist ekki sannfærð um réttmæti þeirra aðgerða á landamærunum sem kynntar voru í dag. 19. júlí 2021 22:00
Hissa að stjórnvöld hafi ekki staðið í lappirnar gagnvart sóttvarnalækni Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það alvarleg vonbrigði að stjórnvöld hafi ákveðið að krefja bólusetta ferðamenn um neikvætt Covid-19 próf við landamærin. 19. júlí 2021 16:12
Talsvert veikir í farsóttarhúsi þrátt fyrir bólusetningu Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af sjö utan sóttkvíar. Mjög hefur fjölgað í farsóttarhúsi síðustu daga en á fjórða tug eru þar í einangrun vegna kórónuveirusmits. Forstöðumaður segir að fólkið sé talsvert veikt, þrátt fyrir bólusetningu. 17. júlí 2021 12:49