Arnór Atla: Færð ekki einn íslenskan landsliðsmann til að viðurkenna það Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2023 09:01 Selfyssingarnir Elvar Örn Jónsson og Janus Daði Smárason ræða málin eftir tapleikinn á móti Svíum. Vísir/Vilhelm Arnór Atlason vill ekki ganga svo langt að segja að íslenska landsliðið sé að gera eitthvað vitlaust og hann er sannfærður um að íslensku strákarnir munu horfa inn á við og gera betur á næstu árum en þeir gerðum á heimsmeistaramótinu í handbolta í ár.
Arnór starfar nú sem aðstoðarþjálfari Aalborg Håndbold en hann hefur fylgst vel með öllu í dönskum handbolta undanfarin ár en Danir hafa nú fyrstir þjóða í sögunni unnið þrjá heimsmeistaratitla í röð. Arnór fór sjálfur á þrettán stórmót með íslenska handboltalandsliðinu og var í báðum verðlaunaliðum Íslands á ÓL 2008 og EM 2010. Valur Páll Eiríksson ræddi við Arnór um nýkrýnda heimsmeistara Dana en það er erfitt að tala um stórmót í handbolta án þess að tala um íslenska landsliðið. „Hvað eru Danir að gera vel sem er að klikka hjá íslenska landsliðinu,“ spurði Valur Páll. Vill ekki segja að við séum að klikka á einhverju „Það er svo sem ekki mikið að klikka hjá okkur en þeir eru bara fleiri og hafa úr stærri hóp að velja. Þeir rótera mjög mikið og þó að þeir séu búnir að vera heimsmeistarar þrisvar í röð þá eru fáir sem eru búnir að vera í öllum þessum þremur liðum. Það hafa alltaf komið nýir og nýir leikmenn inn,“ sagði Arnór Atlason. „Ég ætla ekki að segja að við séum að klikka á einhverju en það er eins og menn geta komið inn hjá Dönum upp úr engu samanber Simon Pytlick núna. Hann er fæddur 2001 og er 22 ára,“ sagði Arnór. Klippa: Arnór Atlason: Það er enginn að leita að einhverjum afsökunum „Við sem erum í Danmörku vitum hvað hann getur enda búinn að vera frábær í deildinni í mörg ár. Að geta komið svona vel inn í liðið á svona stóru sviði er með ólíkindum. Þessir hlutir virðast alla vega vera í mjög góðu lagi hjá Dönunum, að fá fá nýja menn inn sem komast mjög fljótt inn í sín hlutverk,“ sagði Arnór. Væntingarnar voru miklar til íslenska landsliðsins á heimsmeistaramótinu og því var tólfta sætið mikil vonbrigði. „Ég held að þú fáir ekki einn einasta landsliðsmann til að viðurkenna það að þeir hafi eitthvað farið fram úr sér í væntingum. Auðvitað langaði þeim öllum að ná sem bestum árangri, þannig er það bara alltaf,“ sagði Arnór. Hefði verið verra að setja markmiðið lágt „Mér hefði fundist verra ef þeir hefði sett markmið mjög lágt og talað opinskátt um það. Auðvitað stefnir maður bara hátt og vill ná eins langt og hægt er,“ sagði Arnór. „Það voru auðvitað mikil vonbrigði fyrir þá að komast ekki í átta liða úrslit. Það er hægt að finna ótrúlega margar ástæður fyrir því. Eins og við vorum í þessu og ég þekki þessa gaura þá horfa menn inn á við og vilja allir gera betur. Það er enginn að leita að einhverjum afsökunum,“ sagði Arnór. Liðið er frábært „Menn geta gert betur. Liðið er frábært og þeir eiga örugglega eftir að geta betur seinna meir. Ég er sannfærður um það. Mér finnst mjög mikið af góðum hlutum til staðar og það vantar ekki mikið upp á að við séum að komast í þessi átta liða úrslit sem þeir vilja alveg pottþétt vera,“ sagði Arnór eins og sjá má hér fyrir ofan.
HM 2023 í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Fótbolti „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Enski boltinn Vann mótið fárveikur og fór á sjúkrahús Sport „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Sjá meira