Alma Wahlberg er látin

Alma Wahlberg, móðir leikaranna Mark og Donnie Wahlberg, er látin.
Alma Wahlberg, móðir leikaranna Mark og Donnie Wahlberg, er látin. Skjáskot/Instagram

Alma Wahlberg, móðir leikaranna Donnies og Marks Wahlbergs, er látin 78 ára að aldri. Walhberg-bræður minntust móður sinnar á samfélagsmiðlum í dag. 

Þeir greindu ekki frá dánarorsökinni en Alma hafði áður greinst með elliglöp.

„Engilinn minn. Hvíldu í friði,“ skrifaði Mark undir fallega mynd af móður sinni. 

„Fyrir Ölmu. Það var mín blessun í lífinu að svo mögnuð kona skyldi fæða mig í þennan heim, ala mig upp og kenna mér á lífið,“ skrifaði Donnie við myndband. 

Alma eignaðist alls níu börn, þau Arthur, Paul, Jim, Robert, Michelle, Debbie, Tracey, Mark og Donnie. Hún tók virkan þátt í raunveruleikaþáttum fjölskyldunnar, Wahlburgers.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir