Langdræg flugskeyti prófuð í Norður-Kóreu

Frá æfingum í Norður-Kóreu þann 11. september.
Frá æfingum í Norður-Kóreu þann 11. september. AFP

Norður-Kórea hefur hafið prófanir á langdrægum flugskeytum sem ná til stórs hluta Japans, að sögn ríkisfjölmiðla þar í landi. 

BBC greinir frá. 

Prófanir fóru fram um helgina, þar sem flugskeyti flugu allt að 1.500 kílómetra, að sögn KCNA, ríkisfréttamiðils Norður-Kóreu. 

Er talið ljóst að Norður-Kórea hafi getu til þess að þróa öflug vopn þrátt fyrir matarskort og alvarlega efnahagskreppu. 

Bandaríkjaher hefur gefið út að nýjustu prófanir á Kóreuskaga ógni alþjóðasamfélaginu og Japanir hafa sagt æfingarnar valda töluverðum áhyggjum. 

Meðfylgjandi mynd birtist í fréttablaðinu North Korean Rodong Sinmun og má sjá á henni flugskeyti skotið á loft og aðra á lofti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert