Skattamál og loftslagsmál helsti ásteytingarsteinninn Atli Ísleifsson skrifar 13. október 2021 10:29 Flest bendir til að Jafnaðarmaðurinn Olaf Scholz verði næsti kanslari Þýskalands. EPA Líkur eru á að þýski Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD), Græningjar og Frjálslyndir demókratar (FDP) muni ljúka könnunarviðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar fyrir lok þessarar viku. Helst er deilt um skattamál og loftslagsmál í viðræðunum. Volker Wissing, framkvæmdastjóri Frjálslyndra demókrata, segist í samtali við þýska fjölmiðla reikna með að viðræðum ljúki í lok vikunnar og að þá tækju við formlegar viðræður milli flokkanna. Wissing segist bjartsýnn á framhaldið, en flokkarnir hafa annars lítið tjáð sig um framgang viðræðnanna. Í Þýskalandi er rætt um væntanlegt stjórnarmynstur sem „umferðarljósið“ þar sem vísað er í einkennisliti flokkanna – rauðan lit Jafnaðarmannaflokksins, gulan lit Frjálslyndra demókrata (FDP) og grænan lit Græningja. Flestir Þjóðverjar vilja „umferðarljósstjórn“ Deutsche Welle segir frá því að skoðanakannanir bendi til að 51 prósent Þjóðverja styðji myndun ríkisstjórnar flokkanna þriggja, umtalsvert fleiri en þeir sem styðja ríkisstjórnarmynstur með Kristilega demókrata, flokk kanslarans fráfarandi, Angelu Merkel, innanborðs. Þingkosningar fóru fram í Þýskalandi 26. september þar sem SPD, með Olaf Scholz í broddi fylkingar, hlaut flest þingsæti og Kristilegir demókratar næstflest. Niðurstöður þýsku kosninganna: Sósíaldemókratar (SDP): 25,7% Kristilegir demókratar (CDU-CSU): 24,1% Græningjar: 14,8% Frjálslyndir (FDP) 11,5% Valkostur fyrir Þýskaland (AfD): 10,3% Vinstriflokkurinn: 4,9% Skattamálin og loftslagsmálin SPD og Græningjar eru hugmyndafræðilega séð nokkuð líkir flokkar, en FDP sker sig nokkuð frá, sér í lagi þegar kemur að efnahagsmálum. Þýskir fjölmiðlar að flokkarnir hafi helst deilt um efnahags- og skattamál, sem og loftslagsmál. SPD og Græningjar styðja hóflegar skattahækkanir en Frjálslyndir demókratar eru slíkum hugmyndum mjög andsnúnir. Þá vilja Frjálslyndir demókratar treysta meira á hinn frjálsa markað þegar kemur að baráttunni gegn loftslagsbreytingum en hinir flokkarnir tveir sem vilja beita ríkisvaldinu í meiri mæli. Fari svo að samkomulag náist milli flokkanna fyrir helgi munu Græningjar þurfa að boða til flokksþings sem þyrfti að leggja blessun sína yfir samkomulagið. Flokkurinn hefur þó sagst munu geta haldið aukaflokksþing þegar á sunnudaginn til að afgreiða málið. Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Tengdar fréttir Græningjar vilja mynda stjórn með SPD og FDP Græningjar í Þýskalandi vilja taka upp könnunarviðræður við Jafnaðarmannaflokkinn (SDP) og Frjálsynda demókrata (FDP) um myndun nýrrar stjórnar. 6. október 2021 08:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Fleiri fréttir Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Sjá meira
Volker Wissing, framkvæmdastjóri Frjálslyndra demókrata, segist í samtali við þýska fjölmiðla reikna með að viðræðum ljúki í lok vikunnar og að þá tækju við formlegar viðræður milli flokkanna. Wissing segist bjartsýnn á framhaldið, en flokkarnir hafa annars lítið tjáð sig um framgang viðræðnanna. Í Þýskalandi er rætt um væntanlegt stjórnarmynstur sem „umferðarljósið“ þar sem vísað er í einkennisliti flokkanna – rauðan lit Jafnaðarmannaflokksins, gulan lit Frjálslyndra demókrata (FDP) og grænan lit Græningja. Flestir Þjóðverjar vilja „umferðarljósstjórn“ Deutsche Welle segir frá því að skoðanakannanir bendi til að 51 prósent Þjóðverja styðji myndun ríkisstjórnar flokkanna þriggja, umtalsvert fleiri en þeir sem styðja ríkisstjórnarmynstur með Kristilega demókrata, flokk kanslarans fráfarandi, Angelu Merkel, innanborðs. Þingkosningar fóru fram í Þýskalandi 26. september þar sem SPD, með Olaf Scholz í broddi fylkingar, hlaut flest þingsæti og Kristilegir demókratar næstflest. Niðurstöður þýsku kosninganna: Sósíaldemókratar (SDP): 25,7% Kristilegir demókratar (CDU-CSU): 24,1% Græningjar: 14,8% Frjálslyndir (FDP) 11,5% Valkostur fyrir Þýskaland (AfD): 10,3% Vinstriflokkurinn: 4,9% Skattamálin og loftslagsmálin SPD og Græningjar eru hugmyndafræðilega séð nokkuð líkir flokkar, en FDP sker sig nokkuð frá, sér í lagi þegar kemur að efnahagsmálum. Þýskir fjölmiðlar að flokkarnir hafi helst deilt um efnahags- og skattamál, sem og loftslagsmál. SPD og Græningjar styðja hóflegar skattahækkanir en Frjálslyndir demókratar eru slíkum hugmyndum mjög andsnúnir. Þá vilja Frjálslyndir demókratar treysta meira á hinn frjálsa markað þegar kemur að baráttunni gegn loftslagsbreytingum en hinir flokkarnir tveir sem vilja beita ríkisvaldinu í meiri mæli. Fari svo að samkomulag náist milli flokkanna fyrir helgi munu Græningjar þurfa að boða til flokksþings sem þyrfti að leggja blessun sína yfir samkomulagið. Flokkurinn hefur þó sagst munu geta haldið aukaflokksþing þegar á sunnudaginn til að afgreiða málið.
Niðurstöður þýsku kosninganna: Sósíaldemókratar (SDP): 25,7% Kristilegir demókratar (CDU-CSU): 24,1% Græningjar: 14,8% Frjálslyndir (FDP) 11,5% Valkostur fyrir Þýskaland (AfD): 10,3% Vinstriflokkurinn: 4,9%
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Tengdar fréttir Græningjar vilja mynda stjórn með SPD og FDP Græningjar í Þýskalandi vilja taka upp könnunarviðræður við Jafnaðarmannaflokkinn (SDP) og Frjálsynda demókrata (FDP) um myndun nýrrar stjórnar. 6. október 2021 08:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Fleiri fréttir Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Sjá meira
Græningjar vilja mynda stjórn með SPD og FDP Græningjar í Þýskalandi vilja taka upp könnunarviðræður við Jafnaðarmannaflokkinn (SDP) og Frjálsynda demókrata (FDP) um myndun nýrrar stjórnar. 6. október 2021 08:57